Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Kjarasamningur við Ríkisútvarpið

Hér má sjá miðlægan kjarasamning Sameykis við RÚV. Um er að ræða þrjú skjöl, tvö samkomulög um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðila og síðan heildstæðan kjarasamning, skoða þarf skjölin þrjú til að fá heildarsýn á réttindin.

Félagsmenn Starfsmannafélags RÚV samþykktu í atkvæðagreiðslu, sem fram fór í apríl 2019, að leggja niður félagið og ganga inn í Sameyki. Forsaga málsins er sú að Starfsmannafélag Ríkisútvarpsins gekk í SFR stéttarfélag í júní 2016 með svokallaðri aukaðild en lög SFR voru á þá leið að stéttarfélag gat átt þar aðild. Við það öðluðust félagsmenn SRÚ full réttindi sem SFR félagar. Við sameiningu SFR og St.Rv. í Sameyki breyttust lögin hins vegar og möguleikinn á slíku formi aðildar var felldur niður.

Stjórn SRÚ sem í sitja Gunnar Magnússon formaður, Guðrún Gunnarsdóttir ritari og Björn Þór Sigbjörnsson gjaldkeri lagði þá til við félagsmenn að félagið yrði lagt niður og félagar gengju inn í Sameyki með öllum áunnum réttindum. Þessi tillaga var síðan samþykkt í atkvæðagreiðslu sem fram fór í byrjun apríl. Við breytinguna munu félagsmenn halda öllum sínum áunnum réttindum og Sameyki mun taka við samningsumboði fyrir starfsmenn RÚV í þeim störfum sem um ræðir.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)