Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Hótelmiðar

Ertu ekki í stuði fyrir sumarhús?

Nýttu þér þá afsláttinn okkar á hótel innanlands og njóttu lífsins.

 

Halda áfram

Íslandshótel

Gistimiði gildir fyrir hefðbundið tveggja manna herbergi með morgunverði í eina nótt. Uppfærsla í fjögurra stjörnu herbergi á Grand Hótel Reykjavík og Fosshótel Glacier Lagoon er 5.000 kr. fyrir hverja nótt. Með fyrirvara um breytingar verða eftirtalin hótel opin í sumar: Grand Hótel Reykjavík, Fosshótel Glacier Lagoon, Fosshótel Austfirðir, Fosshótel Húsavík, Fosshótel Vestfirðir, Fosshótel Stykkishólmur, Fosshótel Reykholt. Takmarkað framboð er á herbergjum á afsláttarverði og mælum við með að bóka fyrst áður en keyptur er gistimið.

Nánari upplýsingar í síma 562 4000 eða á vefsíðu Fosshótela 

 

Edduhótel

Félagsfólk í Sameyki geta keypt gistimiða á Edduhótel yfir sumartímann. Edduhótel eru hringinn í kring um landið. Gestir sjá sjálfir um að bóka gistingu. Gistimiðar félagsins gilda fyrir tveggja manna herbergi m/handlaug. Félagsmenn eru hvattir til að panta gistingu með góðum fyrirvara. Börn 5 ára og yngri fá frían mat ef þau panta það sama og foreldrar. Börn 6-12 ára greiða ½ gjald fyrir mat ef þau panta það sama og foreldrar.
Allar frekari upplýsingar eru veittar í síma 444 4000 og edda@hoteledda.is.

Upplýsingar um hótelin má einnig fá á vef Edduhótela.

Félagsfólk geta keypt hótelmiða á Orlofshúsavef félagsins. Hver félagsmaður getur keypt mest 7 miða á ári.

 

Kaupa gistimiða

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)