Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Stytting vinnuvikunnar - námsstofur - vaktavinna

Vinnustofur fyrir trúnaðarmenn vegna styttingu vaktavinnunnar voru boðaðar á vorönn en markmiðið með þeim var að gera trúnaðarmenn sem vinna í vaktavinnu hæfari í að takast á við það verkefni að stytta vinnuvikuna. Einnig að auka skilning trúnaðarmanna á nýjum launahvötum og mikilvægi jafnrar dreifingar vinnutíma og álags í nýju vaktakerfi. Námsstofurnar fóru fram á Teams. Þá voru einnig haldnir umræðufundir fyrir minni hóp trúnaðarmanna um leiðir og lausnir við innleiðingu styttingu vinnuvikunnar.

Dagskrá námsstofu um Styttingu vinnuvikunnar í vaktavinnu:

  • Fylgiskjal II og undirbúningsvinnan
  • Kerfisbreytingar sem taka gildi 1. maí 2021
  • Í nýju launamyndunarkerfi
    Hlé
  • Vaktakerfið mitt – hópavinna
  • Dæmi um breytingar
  • Spurningar og samantekt

Forkröfur fyrir námskeið: Áður en trúnaðarmaður mætir á námsstofu þarf hann að fara inna á www.betrivinnutimi.is og setja eigin vaktarúllu hér inn í vaktareikni. Ef upp koma vandræði eða spurningar vakna á trúnaðarmaður að nota tækifærið og safna þeim saman og nýta sem fyrirspurnir inn á námsstofuna. Með slíkum undirbúningi næst mun meiri skilningur og árangur á efni námsstofunnar. Athugið að það getur verið aukinn styrkur að blanda samstarfsfólki og/eða stjórnendum inn í þessa innsetningaræfingu þannig að fleiri fyrirspurnir og/eða meiri skilningur komi út úr æfingunni.

Tímasetningar á námsstofum: 

  • Fim. 21. janúar kl. 9-11
  • Mán. 25. janúar kl. 14-16
  • Mið. 27. janúar kl. 9-11
  • Þri. 2. febrúar kl. 10-12
  • Fim. 4. febrúar kl. 13-15

Stytting vinnuvikunnar - námsstofur - dagvinna

Sameyki boðaði trúnaðarmenn sína á námsstofur á haustönn 2020 til þess að styrkja þá í hlutverki sínu til að taka þátt í og eða standa vörð um þá vinnu sem var framundan á vinnustöðum í styttingu vinnuvikunnar. Trúnaðarmönnum var skipt upp eftir eðli vinnustaða og boðaðir sérstaklega í tölvupósti. Búið er að halda vinnustofur vegna styttingu dagvinnunnar.

Stytting vinnuvikunnar er langþráður áfangi sem náðist í síðustu samningum og því mikilvægt að vel takist til í þeirri vinnu. Vel var hugað að sóttvörnum, m.a með því að takmarka fjölda á hvert námskeið þannig að hægt væri að tryggja 2 metra bil á milli fólks, andlitsgrímur voru aðgengilegar og spritt. Þeir sem ekki treystu sér á slík mannamót gátu tekið þátt í fjarfundi. 

Námsstofan samanstóð af eftirfarandi þáttum:

  • Lífsgæði = Breytt samfélag, tímamótasamningar
    • 36 klst vinnuvika
    • Aðskilja heimili og vinnu
    • Hlutverk og staða trúnaðarmanns
  • Fylgiskjal I og II
    • Vinnutímahópur
    • Hvernig á að skipa fulltrúa? (könnun/kosning)
    • Greining vinnustaðar = hvernig næst markmiðið um 36 stunda vinnutíma? – dæmi
  • Næstu skref
    • 1. október 2020
    • 1. janúar 2021

 

 

Umræður á fundi trúnaðarmanna 10. nóv. 2020