Image for Article

  1. maí 2026

Orlofsuppbót 1. júní

Sameyki minnir á að orlofsuppbót greiðist hinn 1. júní ár hvert samkvæmt kjarasamningum félagsins. Orlofsuppbót er sérstök eingreiðsla sem miðast við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt er hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Hafi starfsmaður látið af störfum á orlofsárinu vegna aldurs eða eftir að hafa starfað samfellt í a.m.k. þrjá mánuði, eða 13 vikur, greiðist orlofsuppbót hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall. Sama á við ef starfsmaður hefur verið frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu vinnuveitanda lýkur eða vegna fæðingarorlofs, eftir því sem nánar er kveðið á um í kjarasamningi.

Orlofsuppbót er föst fjárhæð og á hana reiknast ekki orlofsfé. Áunnin orlofsuppbót skal gerð upp við starfslok.
Fjárhæð orlofsuppbótar kemur fram í viðkomandi kjarasamningi og greiðslan birtist á launaseðli. Kjarasamninga Sameykis má skoða undir Kaup og kjör.