Trúnaðarmenn
Trúnaðarmenn Sameykis eru um 300 og mynda öflugt tengslanet um land allt. Þeir eru kjörnir af félagsmönnum til að vera tengiliðir milli félagsmanna, atvinnurekenda og stéttarfélagsins, og gegna lykilhlutverki í starfi Sameykis, sem leggur metnað í að styðja vel við hópinn.
Flýtileiðir
Vilt þú vera trúnaðarmaður?
Trúnaðarmaður Sameykis er kosinn af félagsfólki á vinnustað til að gegna því mikilvæga hlutverki að vera tengiliður milli félagsmanna á vinnustað og atvinnurekenda annars vegar og milli félagsmanns og stéttarfélags hins vegar. Þeir standa þó aldrei einir því stjórn og starfsmenn félagsins eru þeim til stuðnings við að leysa úr vanda sem upp kann að koma og heyrir undir starfssvið félagsins.
Trúnaðarmannafundir
Trúnaðarmannaráð Sameykis skipa trúnaðarmenn og stjórn félagsins. Fagfélög geta skipað tvo áheyrnarfulltrúa, Háskóladeild kýs tvo fulltrúa og Lífeyrisdeild skipar 14.
Fundir eru mánaðarlega yfir vetur, með stórum fundum í september, desember, mars og maí. Minni fundir eru boðaðir sérstaklega.
Ráðið fjallar um vinnu trúnaðarmanna, fræðslu, þjóðfélagsmál og kjara- og réttindamál félagsmanna, sérstaklega við kjarasamninga.
Fundir eru alla jafna kl. 13:15–15:15.
Fræðsla trúnaðarmanna
Hlutverk trúnaðarmanna er margþætt og er fjölbreytt
fræðsla grunnur að því að trúnaðarmaður geti tekist á
við hlutverk sitt.
Kosning trúnaðarmanna
Kosið er í maí á oddatöluári til tveggja ára í senn. Hafa ber i huga að sá sem starfsfólk velur sér sem sinn trúnaðarmann er fulltrúi þeirra gagnvart atvinnurekanda. Kosning fer fram í samráði við Sameyki en trúnaðarmaðurinn fær staðfestingu á kjöri og umboð sitt frá félaginu.