Lífeyrisdeild Sameykis

Lífeyrisdeildin er fyrir félaga sem hafa lokið starfsævinni eða fá örorkulífeyri. Þú greiðir engin félagsgjöld, heldur tengslum við félagið og getur nýtt orlofshús, styrki og viðburði.

Næsti viðburður lífeyrisdeildar

Láttu ekki plata þig

þriðjudagur 10. nóvember kl. 13:00 · Grettisgötu 89, 1. hæð

Nánar um viðburðinn og skráning

Kynntu þér kosti Lífeyrisdeildarinnar

Skráðu þig í deildina

Aðild gerist ekki sjálfkrafa. Þú sækir um þegar launagreiðslum frá vinnuveitanda lýkur.

Styrkur til náms, allt að 32.000 kr. á ári

Símenntunarsjóður Lífeyrisdeildar styrkir námskeið og fræðslu. Umsóknarfrestur er 10. maí og 10. nóvember.

Orlofshús á 2.500 kr. nóttina

Félagar í lífeyrisdeild leigja orlofshús í Vaðnesi og Munaðarnesi virka daga yfir veturinn á sérkjörum.

Fáðu fréttabréfið sent heim

Fréttabréf Lífeyrisdeildar kemur út að vori og hausti. Við sendum það heim til þín í pósti.

Aðild að lífeyrisdeildinni

Þú þarft að sækja formlega um aðild þegar launagreiðslum frá vinnuveitanda lýkur. Endilega láttu vini og félaga vita sem eiga rétt á aðild.

Hverjir eiga rétt á aðild?

Þú átt rétt á aðild ef þú lýkur starfsævinni sem félagi í Sameyki og hefur verið í félaginu samfellt síðustu fimm ár áður en þú ferð á lífeyri.

Ef þú varst ekki félagi við starfslok getur þú sótt um ef þú hefur að minnsta kosti tíu ára félagsaldur og varst orðin(n) 60 ára þegar þú hættir.

Aðild öryrkja

Öryrkjar geta sótt um aðild ef þeir fá örorkulífeyri frá lífeyrissjóði og stunda ekki launaða vinnu. Senda þarf staðfestingu frá lífeyrissjóði.

Hvaða réttindi fylgja aðild?

  • Engin félagsgjöld
  • Orlofshús og tilboð orlofssjóðs, með takmörkunum yfir sumar og páska
  • Styrkir úr Símenntunarsjóði Lífeyrisdeildar
  • Námskeiðið Gott að vita og viðburðir á vegum Sameykis
  • Haustfagnaður, sumarferðir og aðrir viðburðir lífeyrisdeildar

Símenntunarsjóður Lífeyrisdeildar

Það er alltaf hægt að bæta við sig þekkingu. Félagar í lífeyrisdeild geta fengið styrk vegna námskeiða og fræðslu.

  • Hámarksstyrkur: 32.000 kr. á almanaksári. Styrkir geta lækkað ef margar umsóknir berast.
  • Úthlutun: 15. maí og 15. nóvember. Umsóknir þurfa að berast fyrir 10. maí og 10. nóvember.
  • Kvittanir: Gild kvittun með kennitölu félaga og fræðsluaðila þarf að fylgja umsókn.
  • Styrkhæft: Almennt nám við viðurkenndar stofnanir. Ekki er greitt fyrir námskeið meira en ár aftur í tímann.

Orlofsréttindi lífeyrisdeildar

Félagar í lífeyrisdeild eiga rétt á að nýta sér fjölmarga orlofskosti Sameykis.

Afsláttur á vetrarleigu

Félagar geta leigt orlofshús virka daga yfir vetrartímann í Vaðnesi og Munaðarnesi. Verðið er 2.500 kr. nóttin frá mánudegi til föstudags. Hafðu samband við skrifstofu Sameykis í síma 525 8330 til að fá afsláttinn.

Orlofspunktar

Þú heldur punktaeign þinni þegar þú gengur í lífeyrisdeild og getur klárað að nota hana, en vinnur ekki inn nýja punkta. Vetrarleiga kostar ekki punkta.

Takmarkanir á sumrin og um páska

Ekki er hægt að sækja um í sumarúthlutun né yfir páska. Þú getur þó pantað hús eftir að úthlutun hefur farið fram og opnað er fyrir alla.

Aðrir orlofskostir

Gjafabréf í flug, ferðaávísanir, veiði- og útilegukort og önnur tilboð sem auglýst eru á vef Sameykis.

Skoða öll orlofsréttindi

viðburðir framundan