Fræðsla og starfsþróun
Fræðsla er lykill að starfsþróun og öryggi í starfi. Hér finnur þú upplýsingar um fræðslu, réttindi og stuðning sem þér býðst til að efla hæfni þína.
Flýtileiðir
Námskeið
Finndu fræðslu og námskeið sem nýtast þér
Í gegnum Sameyki hefur þú aðgang að fjölbreyttum fræðslutækifærum sem styðja við dagleg störf, faglega þróun, undirbúning fyrir breytingar á vinnumarkaði og lífsleikni.
Fræðslan er í boði í samstarfi við Fræðslusetrið Starfsmennt, Framvegis miðstöð símenntunar, Farskóla Norðurlands vestra og Símey og er félagsfólki að kostnaðarlausu í flestum tilvikum. Þá getur þú einnig kannað rétt þinn til að sækja um styrk vegna náms hjá skólum og öðrum fræðsluaðilum.
Starfsmennt
Fræðslusetur fyrir opinbert starfsfólk og opinberar stofnanir sem styður við færniþróun starfsfólks svo það geti betur tekist á við fjölbreytt verkefni og breytingar í starfsumhverfi sínu. Markviss færniþróun starfsfólks eykur möguleika stofnana til að þróast og uppfylla kröfur sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma.
Hefur þú ekki lokið framhaldsskóla?
Þá gæti framhaldsfræðslan verið eitthvað fyrir þig en hún vinnur að því að veita fullorðnum einstaklingum með stutta formlega skólagöngu annað tækifæri til náms. Hún felur í sér nám, ráðgjöf og raunfærnimat og hefur það markmið að styrkja starfshæfni.
Veistu ekki hvar þú átt að byrja?
Ef þú ert óviss um hvaða fræðsla hentar þér best getur þú bókað samtal hjá náms- og starfsráðgjafa Starfsmenntar þér að kostnaðarlausu. Þar færður stuðning við að finna leiðir, setja þér markmið og kanna hvar áhugasvið þitt liggur
Námsleyfi
Námsleyfi getur gert þér kleift að sækja nám eða fræðslu samhliða starfi. Í kjarasamningum Sameykis eru ákvæði um námsleyfi sem veita félagsfólki svigrúm til að læra og þróast, ýmist með launuðu eða ólaunuðu leyfi, eftir aðstæðum.
Icelandic for foreigners
Baratala – íslenska sem nýtist í vinnu
Sameyki býður félagsfólki af erlendum uppruna aðgang að Baratala, stafrænu íslenskunámsforriti, sem styður við nám með gagnvirkum æfingum.
Fræðsla trúnaðarmanna
Hlutverk trúnaðarmanna er margþætt og er fjölbreytt fræðsla grunnur að því að trúnaðarmaður geti tekist á við hlutverk sitt.