Image for Article

  1. nóvember 2026

Á milli starfa? Bjóðum upp á námskeið, Viðhorf, seigla og styrkleikar á tímamótum

Að vera á milli starfa getur verið krefjandi en líka tækifæri til að staldra við, skoða hvert maður vill stefna og jafnvel taka óvænta U-beygju.

Sameyki býður félagsfólki sem er á milli starfa á námskeið 17. nóvember þar sem sjónum verður beint að styrkleikum, viðhorfum og seiglu og hvernig hægt er að nýta þessa þætti til að sækja fram í atvinnuleitinni.

Kannski er markmiðið að finna sambærilegt starf og áður. Kannski er kominn tími til að prófa eitthvað nýtt. Á námskeiðinu gefst þátttakendum tækifæri til að skoða eigin stöðu, velta fyrir sér næstu skrefum og setja sér raunhæfa áætlun fyrir næstu vikur og mánuði.

Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um:

  • hvernig við þekkjum eigin styrkleika og nýtum þá í atvinnuleit,
  • hvernig viðhorf geta bæði hjálpað okkur og haldið aftur af okkur,
  • mismunandi tegundir seiglu sem geta hjálpað á tímamótum,
  • hvernig við setjum okkur raunhæf markmið og áætlun um næstu skref.

Leiðbeinandi er Hrefna Guðmundsdóttir, vinnusálfræðingur og markþjálfi, höfundur bókanna Why Are Icelanders So Happy? og From Reykjavík to Penang: Stories of Love and Happiness.

📅 17. nóvember 2026
⏰ 12:30–15:30
📍 Grettisgata 89, 1. hæð, BSRB-húsið

Námskeiðið er ætlað félagsfólki Sameykis sem er á milli starfa.

Skráðu þig á námskeiðið.