Image for Article

  1. apríl 2026

Fyrirlestur um stafrænt áreiti og aðalfundur Háskóladeildar Sameykis

Stjórn Háskóladeildar býður upp á fyrirlestur um Stafrænt áreiti á undan aðalfundarstörfum Háskóladeildar fimmtudaginn 16. apríl kl. 16.30 að Grettisgötu 89, 1. hæð.

Anna Laufey hjá Stafrænni velferð fjallar um Stafrænt áreiti

Á síðustu árum hefur stafrænt áreiti aukist verulega í daglegu starfi. Tölvur, snjallsímar, tilkynningar og samskiptamiðlar fylgja okkur nánast allan daginn og gera það að verkum að mörg okkar eiga erfiðara með að halda einbeitingu og finna skýr mörk milli vinnu og einkalífs.

Í þessum fyrirlestri verður fjallað um tæknilegt áreiti, áhrif fjölverkavinnslu (multitasking) og hvernig fjarvinna og snjalltæki geta truflað mörkin milli vinnu og einkalífs. Einnig verður skoðað hvernig snjalltæki og stafrænar þjónustur eru hannaðar til að ná og halda athygli okkar og hvaða áhrif sú hönnun getur haft á einbeitingu, vinnuvenjur og líðan. Fyrirlesturinn er hannaður til að veita bæði starfsfólki og stjórnendum innsýn í leiðir til að endurheimta einbeitingu, bæta vinnuvenjur og skapa heilbrigðara starfsumhverfi. Farið verður yfir úrræði og lausnir til að ná betra jafnvægi í tækninotkun og stuðla að bættri heilsu og vellíðan.

Anna Laufey hjá Stafrænni velferð er tölvunarfræðingur, appforritari, móðir og snjallsímafíkill. Í starfi sínu í tæknigeiranum vann hún við þróun snjallforrita og þekkir því vel þær aðferðir sem notaðar eru til að halda athygli notenda í stafrænum vörum. Í dag vinnur hún að fræðslu um stafræna velferð og hjálpar fólki að skilja betur hvernig tæknin hefur áhrif á hegðun okkar og athygli.

Dagskrá aðalfundar

1. Stjórn deildarinnar gefur skýrslu um starfsemina á síðastliðnu ári.
2. Breytingar á starfsreglum deildarinnar.
3. Kosið í stjórn
a.Kosning formanns
b.Kosning fjögurra meðstjórnenda
c.Kosning tveggja varamanna
4. Önnur mál.
Léttar veitingar í lok fundar.