- september 2026
Engar breytingar á launatöflum vegna launatöfluauka
Engar breytingar á launatöflum vegna launatöfluauka
Niðurstaða mats á launatöfluauka liggur nú fyrir og verður hann ekki virkjaður í ár, hvorki hjá ríkinu né sveitarfélögum. Sama niðurstaða gildir fyrir önnur heildarsamtök launafólks á opinberum vinnumarkaði.
Fyrir félagsfólk Sameykis hjá ríki og sveitarfélögum þýðir þetta að launatöflur breytast ekki á grundvelli launatöfluaukans.
Launatöfluaukinn er metinn af nefnd sem skipuð er fulltrúum heildarsamtaka launafólks og opinberra launagreiðenda. Nefndin byggir mat sitt á gögnum Hagstofu Íslands um þróun launa og metur hvort skilyrði séu til að virkja aukann.
Mat þetta haust nær til tímabilsins frá desember 2023 til desember 2025. Við útreikningana eru leiðrétt áhrif launabreytinga sem tengjast jöfnun launa og öðrum útfærslum samkvæmt samkomulagi um breytingar á skipan lífeyrismála opinbers starfsfólks frá árinu 2016.
Niðurstaðan er því sú að skilyrði fyrir virkjun launatöfluaukans eru ekki uppfyllt. Launatöflur félagsfólks Sameykis hjá ríki og sveitarfélögum verða því óbreyttar.