- október 2026
Síðasti séns að tryggja sér miða á haustfagnað Lífeyrisdeildarinnar 7.október
Síðasti séns að tryggja sér miða á haustfagnað Lífeyrisdeildarinnar 7.október
Lífeyrisdeild Sameykis býður til haustfagnaðar miðvikudaginn 7. október kl. 12.00–15.00 í Gullhömrum í Grafarholti.
Boðið verður upp á glæsilegt steikarhlaðborð með kalkún og purusteik ásamt meðlæti. Í eftirrétt verður súkkulaðifrauð.
Jón Sigurðsson mætir með gítarinn, Grímur Sigurðsson og Sara Grímsdóttir leika fyrir dansi.
Verð: 6.500 kr. á mann.
Félagsfólk má bjóða með sér einum gesti.
Hér er hægt að skrá sig til leiks https://orlof.is/sameyki/site/product/product_list.php...
Lokað verður fyrir skráningu kl. 12.00 föstudaginn 2. október.