- nóvember 2026
Nýr orlofsvefur Sameykis
Nýr orlofsvefur Sameykis
Orlofsvefurinn okkar er nú aðgengilegur á orlof.sameyki.is í stað orlof.is/sameyki.
Nú þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum til að skoða orlofsvefinn en áður þurfti eingöngu að skrá sig inn til að bóka. Farðu á nýju slóðina og skráðu þig inn til að skoða orlofskosti, bókanir þínar og punktastöðu.
Allar bókanir og punktastaða félagsfólks eru óbreytt. Þú þarft því ekki að bóka aftur dvöl sem þú átt þegar bókaða.
Ef þig vantar aðstoð við innskráningu eða notkun vefsins geturðu haft samband við skrifstofu Sameykis í síma 525 8330 eða sent tölvupóst á orlof@sameyki.is.