Image for Article

  1. júlí 2026

Sumarferð, sögustaðir og sveppasúpa

Lífeyrisdeildin okkar fór nýverið í sína árlegu sumarferð sem jafnan er mjög vel sótt. Í ár var engin undantekning þar á, en boðið var upp á þrjár dagsetningar og fullt var í allar ferðirnar.

Það er okkur mikils virði að geta boðið þessum frábæra hópi upp á góða samveru, skemmtilegan dag og fallega upplifun.

Að þessu sinni lá leiðin fyrst í Borgarnes. Þar var stoppað í Skallagrímsgarði, í hjarta bæjarins, áður en haldið var í Safnahús Borgarfjarðar þar sem vel var tekið á móti hópnum.

Frá Borgarnesi var ekið út á Snæfellsnes og áfram til Stykkishólms. Þar gæddum við okkur á gómsætri rjómalagaðri sveppasúpu og brauði á Narfeyrarstofu. Að því loknu gafst tími til að njóta bæjarins og fallegs umhverfis.

Í Helgafellssveit var stoppað á Hraunhálsi, þar sem ábúendur hafa tekið Eyrbyggja sögu upp á sína arma. Þar fengum við innsýn í áhugavert samfélagsverkefni þar sem kvenfélögin í sveitinni, sjö að tölu, taka þátt í að sauma út Eyrbyggjarefil. Ullin í refilinn kemur frá bændum á nesinu.

Á leiðinni til baka var stoppað á Hótel Hamri við golfvöllinn í Borgarnesi, þar sem hópurinn naut góðs kvöldverðar áður en haldið var heim á leið eftir velheppnaða daga.

Veðurguðirnir voru með í för og buðu upp á sannkallað íslenskt sumarveður með öllu sem því fylgir. Við þökkum öllum sem tóku þátt og gerðu þessar ferðir að veruleika.

Við erum strax farin að hlakka til næstu ferðar.

Hér er hægt að skoða myndir úr ferðinni.