Image for Article

  1. júní 2026

Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg – Sameyki stendur þétt við bakið á félagsmönnum

Í ljósi frétta af uppsögnum og skipulagsbreytingum hjá Reykjavíkurborg í gær vill Sameyki koma upplýsingum á framfæri til félagsmanna sem þær snerta. Breytingar eins og þessar valda alltaf óöryggi og áhyggjum og Sameyki harmar þessar uppsagnir sem hafa áhrif á fjölda starfsfólks og okkar félagsmanna. Við stöndum þétt við bakið á okkar fólki og munum tryggja að réttindi allra séu virt að fullu.

„Þetta eru erfiðar fréttir fyrir það starfsfólk sem nú stendur frammi fyrir mikilli óvissu. Það er mikilvægt að allt ferlið fari fram af fagmennsku og að réttindi starfsfólks séu fyllilega virt. Við fengum tilkynningu um hópuppsögnina fyrir fram samkvæmt lögum, kjaradeild félagsins fylgist náið með framvindunni og okkar fólk á skrifstofu Sameykis er boðið og búið að veita upplýsingar um réttindi, uppsagnarfrest, launakjör og önnur atriði sem kunna að vakna í kjölfar uppsagnanna,“ segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis.

Sameyki hefur þegar hafið vinnu við að veita því félagsfólki sem málið snertir ráðgjöf og stuðning.

Allar upplýsingar um helstu réttindi sem gott er að hafa í huga má finna á vef Sameykis.

Samskiptaleiðir og aðstoð

Viðbrögð formanns Sameykis