Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

18. mars 2014

Samningur St.Rv. og Reykjavíkurborgar felldur

Kjarasamningur St.Rv. og Reykjavíkurborgar sem undirritaður var 9. mars síðastliðinn var felldur með 217 atkvæðum eða 50,6% á móti 208 atkvæðum eða 48,5%. Á kjörskrá voru 3349 en 429 greiddu atkvæði eða 12.8%.

Nú stendur yfir atkvæðagreiðsla um kjarasamning SFR við Reykjavíkurborg sem er í raun sams konar samningur og sá sem nú hefur verið felldur. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar um samning SFR og Reykjavíkurborgar munu liggja fyrir síðdegis á morgun miðvikudag.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)