8. júlí 2014
Blað stéttarfélaganna í prentun
Sumarblað Blaðs stéttarfélaganna sem gefið er út af SFR stéttarfélagi og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar er nú í prentun og verður dreift til félagsmanna síðar í vikunni. Í blaðinu nú má m.a. lesa um niðurstöður í könnuninni um Stofnun ársins, en farið var í heimsókn til tveggja stofnana sem hlutu titilinn og talað við bæði starfsmenn og forstjóra. Þessar stofnanir eru Orkuveita Reykjavíkur sem var stofnun ársins í flokki stærri stofnana hjá St.Rv. og Sjálfsbjargarheimilið sem var Stofnun ársins hjá SFR í flokki stærstu stofnana.
Í sumarblaðinu hefur einnig nýr greinarflokkur um umhverfismál göngu sína, en í þessari fyrst grein er fjallar Auður Alfífa um plastpokanotkun. Þá fjallar Vésteinn Valgarðsson um verkalýðsmál í Danaveldi og vinningsmyndirnar úr ljósmyndasamkeppni blaðsins eru einnig birtar í blaðinu.