19. mars 2015
Ábendingar vegna skattframtals 2015 - styrkir úr sjóðum SFR á árinu 2014
Í lið 2.3 undir ,,Annað, hvað?“ á tekjusíðu skattframtals koma fram forskráðar upplýsingar um greidda styrki úr Styrktar-og sjúkrasjóði SFR. Vegna líkamsræktarstyrks og sjúkraþjálfunar vegna endurhæfingar er heimilt að færa kostnað til frádráttar að hámarki 50.000 kr. í reit 157. Aðrir styrkir úr sjóðnum eru staðgreiðsluskattskyldir og enginn frádráttur heimilaður.
Í reit 131 á tekjusíðu skattframtals ,,Styrkir til náms, rannsóknar- og vísindastarfa“ kemur fram heildarupphæð greiddra styrkja úr Starfsmenntunarsjóði SFR.Í reit 149 er heimilt að færa beinan kostnað á móti náms-, rannsóknar- eða vísindastyrkjum. Gera skal sundurliðaða grein fyrir þessum kostnaði á sérstöku yfirliti sem fylgir framtalinu (sérstakt undirblað á vefframtali).
Hægt er að nálgast leiðbeiningar um skattframtal einstaklinga hér: https://www.rsk.is/media/baeklingar/rsk_0801_2015.is.pdf