Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

31. janúar 2018

Morgunverðarfundir leggja land undir fót

Góð stemning og kröftugar umræður voru á morgunverðarfundi SFR um samstarf SFR og St.Rv. sem haldinn var á Akranesi í gær. Fundurinn var sá fyrsti sem haldinn er utan Reykjavíkur en næstu vikurnar verða fundir á Egilsstöðum, Ísafirði, Akureyri, Selfossi, Reykjanesbæ og Sauðárkróki. Nákvæma tímasetningu má finna undir viðburðum á heimasíðunni.  
Boðið er á morgunverðarfundina samkvæmt slembiúrtaki úr félagatali SFR en allir sem hafa áhuga á að taka þátt í umræðunni og koma skoðunum sínum á framfæri eru velkomnir.
Til að skrá sig á fund má senda póst á sfr@sfr.is eða hringja á skrifstofuna í síma 525-8340.

  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)