21. september 2018
Líflegar umræður um #metoo á fræðslumorgni
Það var áhugasamur hópur trúnaðarmanna sem sat fræðslu um #metoo og aðgerðir gegn áreitni og einelti á vinnustað á dögunum. Sonja Ýr Þorbergsdóttir lögfræðingur BSRB var leiðbeinandi og hélt afar fróðlegt erindi þar sem birtingarmyndir og afleiðingar áreitni og eineltis á vinnustað voru m.a. skoðaðar. Þá var trúnaðarmönnum kennd hvaða réttindi og skyldur starfsfólk og atvinnurekanda hafa þegar slík mál koma upp og í hvaða farveg er hægt að setja málin. Miklar og líflegar umræður sköpuðust á námsskeiðinu enda auðheyrt að áhugi fólks og áhyggjur af slíkum málum mikill.