Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

11. mars 2019

Málþing um nýja persónuverndarlöggjöf

Föstudaginn 15. mars kl. 13-16 standa Háskólinn á Bifröst og Fræðslusetrið Starfsmennt sameiginlega að málþingi um nýja persónuverndarlöggjöf sem tók gildi í júlí sl. Málþingið er innlegg í opinbera umræðu um löggjöfina út frá sjónarhorni stjórnsýslunnar og siðfræðinnar.

Skráning og upplýsingar um dagskrá má finna hér.

Málþingið er einnig hluti af nýju diplómanámi á grunnstigi háskóla sem Háskólinn á Bifröst og Starfsmennt settu á fót haustið 2018. Námið miðar að því að veita núverandi og tilvonandi starfsmönnum hins opinbera, bæði hjá ríki og sveit, hagnýta þjálfun og fræðilega undirstöðu sem nýtast í starfi. Sett hefur verið saman heildstæð námsleið til BA prófs í opinberri stjórnsýslu og geta áhugasamir kynnt sér betur báðar námsleiðir, þ.e. diplómanámið og BA námið, á málþinginu.

Hér má nálgast auglýsingu um málþingið.