Fylgiskjöl í kjarasamningum við Reykjavíkurborg
Fylgiskjal XIII: Reglur um launalaus leyfi
Reglur um launalaus leyfi starfsmanna Reykjavíkurborgar
Starfsmenn Reykjavíkurborgar geta sótt um launalaust leyfi til viðkomandi forstöðumanns, enda sé umsóknin studd fullnægjandi gögnum.
1. gr.
Leyfið sé ekki veitt til lengri tíma en 12 mánaða. Sama starfsmanni sé ekki veitt endurtekið leyfi nema liðin séu minnst þrjú ár frá því að það var síðast veitt.
2. gr.
Einungis sé veitt launalaust leyfi, þegar til þess liggja ríkar ástæður sem starfsmanni ber að tilgreina. Þær ástæður, sem helst koma til álita, eru framlenging á fæðingarorlofi, leyfi til náms sem nýtist í starfi, sérstakar fjölskylduástæður og aðrar ástæður sem til þessara má jafna. Ef starfsmaður hyggst ráða sig í aðra vinnu til lengri tíma en þriggja mánaða skal að jafnaði ekki veita launalaust leyfi.
3. gr.
Ef óhjákvæmilegt reynist að ráða starfsmann í stað þess sem veitt er launalaust leyfi skal skriflega frá því gengið við ráðningu að hún sé til ákveðins tíma og sé slitið án uppsagnar.
4. gr.
Forst.m. tekur ákvörðun um veitingu launalauss leyfis til allt að 12 mánaða.
5. gr.
Þyki sérstakar ástæður sem varða starfsmann, starfslegar eða fjölskyldulegar, og hagsmunir Reykjavíkurborgar, mæla með því að víkja frá framangreindum reglum og veita rýmra leyfi, skal forst.m. stofnunar eða fyrirtækis senda kjaraþróunardeild málið ásamt ítarlegri greinargerð umsækjanda og tillögu forstöðumanns um afgreiðslu málsins. Kjaraþróunardeild tekur ákvörðun um veitingu leyfis á grundvelli þessarar greinar.
6. gr.
Starfsmaður sem telur synjun um launalaust leyfi ekki vera í samræmi við reglur þessar eða telur á annan hátt rétt á sér brotinn getur skotið máli sínu til afgreiðslu borgarráðs.
7. gr.
Reglur þessar rýra ekki áunninn eða umsaminn rétt starfsmanna sem þeir eiga á grundvelli kjarasamninga.
Kjaraþróunardeild 17. október 2000
Samþykkt í borgarráði 17. október 2000.