Fræðslusjóður Reykjavíkurborgar
Umsókn fyrir starfseiningar
Deildir innan starfseininga og sviða Reykjavíkurborgar geta sótt um styrki til skipulagðra fræðsluferða og sérhæfðra ráðstefna. Styrkirnir eru ætlaðir til að þróa starf og hæfni tiltekins hóps á vinnustaðnum og ná til sjóðsfélaga sem þar starfa.
Styrkbeiðnir vegna annarra fræðsluverkefna skulu sendar í Torgssjóð. Torgssjóður styður fræðslu- og mannauðstengd verkefni innan starfseininga og sviða. Nánari upplýsingar má finna í úthlutunarreglum Torgssjóðs á Fróða, innri vef Reykjavíkurborgar.
Hvað styrkir sjóðurinn?
Styrkir fyrir verkefni erlendis geta að hámarki numið 85% af heildarkostnaði
Ráðstefnur innanlands og erlendis
Fræðsluferðir starfseininga, innnanlands og erlendis
Flug og gisting
Samöngur milli borga/landshluta
Hvað er ekki styrkt
Fæðiskostnaður og dagpeningar
Launatap
Ferðir innan borga og sveitarfélaga, bílastæðagjöld og bensín
Göngu- og safnaferðir undir leiðsögn
Gisting á dögum án fræðslu
Heimsóknir í sendiráð
Rannsóknarferðir og samráðsfundir
Hópefli og hvataferðir
Reglugerð Fræðslusjóðs Sameykis –Reykjavíkurborg
1. gr. Nafn sjóðsins
2. gr. Markmið sjóðsins
Markmið sjóðsins er að efla sí- og starfsmenntun sjóðsfélaga til að auka hæfni þeirra og möguleika til starfsþróunar.
Sjóðstjórn er heimilt að veita fjárstyrki úr sjóðnum til eftirfarandi aðila, vegna verkefna er samræmast markmiðum sjóðsins:
- Starfsstaða Reykjavíkurborgar vegna fræðsluferða afmarkaðra hópa innan starfseininga/sviða.
- Félagsfólks Sameykis sem aðild á að sjóðnum vegna starfsmenntunar-, starfsþróunar- og vísindaverkefna í samræmi við gildandi úthlutunarreglur.
- Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu.
- Fræðslusetursins Starfsmenntar vegna þátttökugjalda einstaklinga sem starfa hjá Reykjavíkurborg og sækja námskeið á vegum Starfsmenntar.
Sjóðsstjórn setur sér starfsreglur um styrkúthlutanir og upphæðir styrkja.
3. gr. Stjórn
4. gr. Tekjur sjóðsins
Tekjur sjóðsins eru:
- Framlag úr borgarsjóði samkvæmt kjarasamningi aðila
- Vaxtatekjur
- Aðrar tekjur
Tekjum sjóðsins skal einungis varið í samræmi við markmið hans sbr. 2. gr.
Ávöxtun sjóðsins skal vera með ábyrgum hætti.
5. gr. Umsóknir
6. gr. Rekstur sjóðsins og ávöxtun
7. gr. Ársreikningur og endurskoðun
Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Ársreikning sjóðsins skal birta með reikningum Sameykis og hann endurskoðaður með sama hætti og félagssjóður. Ársreikninginn skal leggja fram og afgreiða á aðalfundi með öðrum reikningum félagsins fyrir lok mars. Skýrsla yfir starfsemi sjóðsins skal fylgja skýrslu stjórnar Sameykis.
Árlega verður á vettvangi Starfskjaranefndar farið yfir starfsemi nýliðins árs hjá sjóðnum, sundurliðun verkefna og hvernig þau hafa nýst félagsfólki Sameykis. Á sama tíma verður farið yfir ársreikninga. Reykjavíkurborg skipar einn skoðunarmann sem skal yfirfara ársreikninga sjóðsins áður en þeir eru lagðir fram til samþykktar í stjórn. Miða skal við að fundur um þessa liði verði haldinn fyrir lok aprílmánaðar ár hvert.
8. gr. Breytingar á reglugerð
Úthlutunarreglur – Reykjavíkurborg – Svið og starfsstaðir
1. gr. Markmið
2. gr. Réttur til að sækja um styrk
3. gr. Hvað er styrkt
Deildir innan starfseininga/sviða geta sótt um styrki vegna skipulagðra fræðsluferða og sérhæfðra ráðstefnuferða sem miða að því að þróa starf tiltekins hóps innan vinnustaðarins.
Almenna viðmiðið er að sami hópur/deild geti fengið slíkan styrk á þriggja ára fresti.
Tilgangur ferða þarf að vera að sækja sértæka fræðslu sem er til þess fallin að styðja við þróun á fagsviði/starfsvettvangi á vinnustaðnum. Rökstyðja þarf staðarval náms. Fræðslusjóður styrkir ekki hvataferðir.
4. gr. Hvað er ekki styrkt
Eftirfarandi kostnaðarliðir eru ekki styrktir:
- Fæðiskostnaður eða dagpeningar
- Launatap
- Ferðir innan borga og sveitarfélaga
- Bílastæðagjöld og bensínkostnaður
- Sá hluti fargjalda sem greiddur er með vildarpunktum eða annars konar viðskiptavild
Alla jafna eru eftirfarandi dagskrárliðir ekki styrkhæfir í fræðsluferðum starfseininga:
- Gisting vegna daga sem ekki innihalda fræðslu
- Úrvinnsla hópsins á undangenginni heimsóknarferð
- Heimsóknir í sendiráð
- Göngu- og safnaferðir undir leiðsögn (nema þær falli undir starfssvið einingar)
- Verkefni þar sem leiðbeinandi fer frá Íslandi til að halda námskeið/kynningu/fræðsluerindi á erlendri grundu
- Hópefli/liðsheildarvinna/hvataferðir
- Rannsóknarferðir og samráðsfundir
5. gr. Hvenær þarf að sækja um
6. gr. Umsókn og gögn
Umsóknum skal skilað til Fræðslusjóðs Sameykis með rafrænum hætti.
Gögn sem þurfa að fylgja þegar sótt er um vegna fræðsluferða/ráðstefnuferða:
1. Rökstuðningur frá stjórnanda. Þar þarf að koma fram:
- Hvert er markmið og tilgangur ferðar
- Hvernig nýtist ferðin til frekari þróunar starfseiningarinnar
- Rökstuðningur á staðarvali, af hverju verður þessi staður fyrir valinu
- Hversu margir taka þátt í fræðsluferðinni og hversu margir af þeim eru í Sameyki
- Nöfn og kennitölur félagsfólks Sameykis
- Hvort og þá hvenær þessi starfseining hafi áður farið í fræðsluferð
2. Staðfesting sviðsstjóra / umboð
Þegar sótt er um fyrir deild/hóp þarf að koma staðfesting frá sviðsstjóra/sviðsstjórum um að viðkomandi hópi sé heimilt að sækja fræðsluferð/ráðstefnu erlendis og að ferðin styðji við stefnu sviðsins. Ef annar en sviðsstjóri sendir inn umsókn fyrir hönd sviðsins/starfseiningar þá þarf að skila inn undirrituðu umboði frá viðkomandi sviðsstjóra.
3. Bréf frá móttökuaðila
Staðfesting á móttöku hópsins með upplýsingum um tíma og innihald fræðslu. Ef um ráðstefnu er að ræða þá nægir ráðstefnumiði.
4. Ítarleg dagskrá. Þar þarf að koma fram:
- Hvaða staðir eru heimsóttir, heiti staðarins og nafn tengiliðs.
- Dagsetningar heimsókna og tímaáætlun í klukkustundum.
- Innihaldslýsing faglegrar fræðslu fyrir hvern dagskrárlið.
- Ef ráðstefna eða námskeið þarf að koma vefslóð eða útgefin gögn um ráðstefnu eða námskeið.
5. Kostnaðaráætlun
Stjórn Fræðslusjóðs Sameykis beinir því til starfseininga og vinnustaða að gæta hófs og skipuleggja fræðsluferðir með eins hagkvæmum hætti og hægt er. Skila þarf inn sundurliðaðri kostnaðaráætlun þar sem fram kemur kostnaður fyrir hvern þátttakanda (flug, gisting, samgöngur, fræðsla) og heildarkostnaður vegna þátttöku félagsfólks Sameykis. Kostnaðarhlutdeild starfseiningar/vinnustaðar vegna fræðsluferða er 15%.
Mikilvægt er ef bókað er í gegnum ferðaskrifstofu að afmarka gistikostnað frá öðrum kostnaði.
7. gr. Styrkfjárhæð
8. gr. Afgreiðsla umsókna
Styrkur er greiddur gegn framvísun reikninga fyrir útlögðum kostnaði sem sótt er um styrk fyrir. Reikningar skulu sýna sundurliðun allra kostnaðarþátta, svo sem fræðslu-, samgöngu-, gisti- og flugkostnaðar.
Reikningar þurfa að berast ekki seinna en 12 mánuðum eftir að verkefni lýkur.
Úthlutun úr sjóðnum fer fram a.m.k. ársfjórðungslega eða oftar samkvæmt ákvörðun sjóðsstjórnar.
Um allar umsóknir gildir að hægt verði að kanna styrkhæfi verkefnis áður en lagt er út fyrir kostnaði með því að skila inn umsókn.
9. gr. Gildistökuákvæði
Úthlutunarreglur þessar voru kynntar og staðfestar 15. janúar 2025 af Starfskjaranefnd Sameykis og Reykjavíkurborgar. Reglur þessar eru samþykktar á fundi stjórnar Fræðslusjóðs Sameykis í janúar 2025 og taka gildi 1. febrúar. Við gildistöku falla úr gildi eldri úthlutunarreglur og aðrar ákvarðanir sem ekki eru í samræmi við reglur þessar.
Úthlutunarreglur eru endurskoðaðar reglulega og eru birtar jafnóðum á heimasíðu Sameykis.