Úthlutun orlofshúsa

Á Orlofshúsavef Sameykis getur þú bókað og sótt um orlofshús og orlofsíbúðir. Þar er einnig hægt að kaupa gjafabréf í flug, veiðikort, útilegukort, ferðaávísanir og fleira. Hér finnur þú upplýsingar um úthlutanir orlofshúsa.

Á Orlofshúsavef Sameykis bókar þú og sækir um orlofshús og orlofsíbúðir. Þar er einnig hægt að kaupa gjafabréf í flug, veiðikort, útilegukort, ferðaávísanir og fleira undir liðnum Gjafabréf í flug og fl. í valmyndinni.

Einnig finnur þú afslætti af ýmsum vörum og þjónustu fyrir félagsfólk Sameykis undir Afslættir. Framvísa þarf félagsskírteini, sem er aðgengilegt á Mínum síðum Sameykis.

Úthlutunartímabil

Ekki skiptir máli hvenær á umsóknartímabili sótt er um, kerfið raðar umsóknum eingöngu eftir punktastöðu félagsfólks.

Niðurstöður úthlutunar eru sendar í tölvupósti með tilgreindum greiðslufresti.

Vetur innanlands og á Los Arenales

Opnað verður fyrir bókanir á tímabilinu frá 4. janúar til 27. maí 2027, að páskum undanskildum, þann 14. september kl. 13:00. Þá gildir „fyrstur kemur fyrstur fær.“

Bókanir fara fram á Orlofshúsavefnum.

Tenerife vetur 2027

Opnað fyrir umsóknir fyrir tímabilið 21. janúar–27. maí 2027, að páskum undanskildum, þann 1. september kl. 09:00.

Umsóknarfrestur rennur út 8. september kl. 23:59. Úthlutun fer fram samkvæmt punktakerfi 11.september. Greiðslufrestur fyrir þá sem fá úthlutað er til og með 18. september.

Þann 21. september kl. 13 geta þeir sem sóttu um í úthlutuninni og fengu synjun bókað viku á Tenerife ef eitthvað er enn laust, þá gildir „fyrstur kemur fyrstur fær.“

Svo þann 22. september kl. 13 opnar fyrir bókanir fyrir allt félagsfólk ef eitthvað er enn laust, þá gildir einnig „fyrstur kemur fyrstur fær.“

Þeir sem leigðu íbúðina á Tenerife 2026 koma ekki til greina í úthlutun 2027.