Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Úthlutunarreglur sjúkradagpeninga BSRB

Styrktarsjóður BSRB

Sjóðurinn greiðir bætur til sjóðfélaga í slysa- og veikindatilfellum eftir því sem nánar er mælt fyrir í þessum reglum. Sjóðurinn styrkir einnig fyrirbyggjandi aðgerðir á sviði heilsueflingar og forvarnir gegn sjúkdómum samanber umfjöllun undir Styrktarsjóður.

Rétt til dagpeninga eða styrks úr sjóðnum eiga þeir sem aðild eiga að sjóðnum og njóta veikindaréttar samkvæmt gr. 2.2.1 í samkomulagi BSRB um veikindarétt enda hafi verið greitt vegna þeirra í sjóðinn a.m.k. 6 mánuði fyrir styrkveitingu.

Dagpeningar greiðast úr sjóðnum með eftirfarandi hætti:

  • Dagpeningar greiðast frá þeim tíma sem samnings-/lögbundinni launagreiðslu frá atvinnurekanda lýkur.
  • Upphæð dagpeninga skal vera 80% af meðal heildarlaunum síðustu 12 mánuði. Sé starfstími skemmri skal miðað við meðaltal launa þann tíma.
  • Heimilt er að greiða dagpeninga hlutfallslega ef sjóðfélagi getur ekki vegna veikinda unnið fulla vinnu samkvæmt læknisráði.
  • Heimilt er að greiða dagpeninga í allt að 60 daga vegna langvarandi veikinda maka eða barna sjóðfélaga enda missi hann launatekjur vegna þeirra. Sjóðfélagi skal þó hafa náð eins árs sjóðsaðild til að njóta þessarar heimildar.
  • Réttur sjóðfélaga til dagpeninga á hverjum 12 mánuðum er:
    • Starfstími 6 til 12 mánuðir, 45 dagar.
    • Starfstími lengri en 12 mánuðir, 90 dagar, þó þannig að samanlagt greiðslutímabil vinnuveitanda og sjóðsins verði aldrei lengra en 360 dagar. Þá er heimilt að greiða dagpeninga í allt að 45 daga til þeirra sem hafa lokið 360 daga veikindarétti hjá launagreiðanda.
  • Dagpeningar greiðast ekki lengur en ráðningu starfsmanns er ætlað að standa.

Varðandi dagpeninga til atvinnulausra þá segir í 12. grein reglna sjóðsins sem varða sjóðsaðild segir eftirfarandi:

  • Atvinnulausir sem greiða félagsgjald til stéttarfélaga sem eiga aðild að sjóðnum geta sótt um styrki skv. eftirtöldum greinum: 5a, 5b, 5d, 5h og 6.gr.
  • Atvinnulausir ávinna sér ekki rétt á meðan á atvinnuleysi stendur en viðhalda þeim rétti sem þeir höfðu þegar þeir voru í starfi.
  • Missi atvinnulausir bætur vegna veikinda getur sjóðurinn styrkt þá sem svarar 100% af atvinnuleysisbótum í allt að 45 daga.

ATHUGIÐ!
Þegar sótt er um dagpeninga þurfa eftirfarandi gögn að fylgja:

  • Vottorð vinnuveitanda 
  • 12 síðustu launaseðlar (hægt að sækja af heimabanka eða hjá atvinnurekanda)
  • Staðfesting frá RSK um nýtingu persónuafsláttar (þjónustuvefur RSK.IS)
  • Læknisvottorð sem staðfestir óvinnufærni á því tímabili sem sótt er um sjúkradagpeninga

Nánari upplýsingar og tengill á Mínar síður Styrktarsjóðs BSRB má finna hér.