Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Trúnaðarmannafræðsla Geðheilbrigðir trúnaðarmenn - Vinnustofa

Kl: 9:00-12:00
Staðsetning: BSRB húsið, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík, 1. hæð

Skráning

Með vinnustofunni Geðheilbrigðir trúnaðarmenn er markmiðið að byggja upp færni og sjálfstraust meðal trúnaðarmanna til að taka þátt í innihaldsríkum samtölum um geðheilbrigði á vinnustað sínum. Áhersla er lögð á þátt þátttakenda í að stuðla að opinskárri umræðu um geðheilbrigði á vinnustaðnum og gera þau fær í að hvetja til umræðna sem einkennast af samkennd og skilningi.

Þátttakendur á vinnustofu munu öðlast innsýn í einkenni og birtingarmyndir geðvanda, öðlast færni til að bera kennsl á, bregðast við á viðeigandi hátt með forvarnir að leiðarljósi og hlúa að eigin geðheilbrigði og þeirra sem í kringum þau eru.

Í samræmi við leiðbeinandi viðmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um geðheilbrigði á vinnustað (2022), tekur vinnustofan á gagnreyndum leiðbeiningum stofnunarinnar til að efla geðheilbrigði, auka forvarnir og stuðla að velmegun þess starfsfólks sem stendur frammi fyrir geðheilbrigðisáskorunum á vinnustað.

Hæfniviðmið

  • Að fræðast um geðheilbrigði og andleg veikindi.
  • Að ræða og skoða persónuleg og kerfislæg viðhorf, mýtur og tungutak sem tengjast geðheilbrigði á vinnustað
  • Að þekkja og geta borið kennsl á merki um neikvæða geðheilsu og streitu á vinnustað
  • Að geta tekist á við sameiginlega og samfélagslega ábyrgð í hlutverki trúnaðarmanna í geðheilbrigði á vinnustað
  • Að huga að hlutverki trúnaðarmanna við að hlúa á uppbyggilegan hátt að geðheilsu samhliða hlutverki sínu sem trúnaðarmenn
  • Að geta greint og læri að nýta sér nauðsynlega færni fyrir samtöl um líðan og geðheilbrigði við samstarfsfólk
  • Að þekkja til og skilji úrræði til stuðnings og inngripa fyrir starfsfólk