Trúnaðarmannafræðsla Geðheilbrigði á vinnustað og uppskriftin að góðri geðheilsu
Fyrirlestrinum er ætlað að vekja trúnaðarmenn til vitundar um mikilvægi þess að huga að geðheilbrigði á vinnustað, starfsfólks alls og okkar sjálfra. Farið er yfir helstu áskoranir sem starfsfólk vinnustaða stendur frammi fyrir þegar kemur að eigin geðheilbrigði og samstarfsfólks. Borin eru kennsl á helstu atriði í stjórnun og vinnufyrirkomulagi sem líkleg eru til að draga úr eða efla geðheilsu starfsfólks og um ábyrgð fyrirtækja, stjórnenda og okkar sjálfra í að hlúa að geðheilbrigði á vinnustað. Að síðustu er markmiðið að fræða viðstödd og vekja til umhugsunar um mikilvægi þess að hlúa að eigin geðheilsu um leið og kenndar eru hagnýtar og árangursríkar leiðir til sjálfsumönnunar.
Hæfniviðmið
- Að átta sig á mikilvægi þess að setja geðheilbrigði á vinnustað í forgang
- Að þekkja helstu áskoranir sem starfsfólk og stjórnendur standa frammi fyrir í tengslum við geðheilbrigði á vinnustað
- Að þekkja helstu orsakir, afleiðingar og merki um neikvæða geðheilsu og streitu á vinnustað
- Að átta sig á hver einkenni algengra geðvandamála eru
- Að þekkja til gagnlegra og viðurkenndra aðferða til að hlúa að eigin geðheilsu og bæta líðan á vinnustað (HAM)
- Að hafa sína eigin uppskrift að góðri geðheilsu