Baratala íslenskunám
Sameyki býður nú félagsfólki sínu ókeypis aðgang að Baratala, stafrænu íslenskunámsforriti sem styður við nám með gagnvirkum æfingum. Áhersla er á orðaforða í starfi og daglegu lífi, skilning og talmál og notendur geta lært á sínum eigin hraða, hvenær sem er og hvar sem er.
Flýtileiðir
Íslenska fyrir útlendinga
Aðgangur að Baratala
Sameyki býður nú félagsfólki sínu ókeypis aðgang að Baratala, stafrænu íslenskunámsforriti sem styður við nám með gagnvirkum æfingum.
Baratala getur nýst vel þeim sem vilja styrkja íslenskuna sína til að efla sig í starfi og daglegu lífi. Áhersla er á orðaforða, skilning og talmál og notendur geta lært á sínum eigin hraða, hvenær sem er og hvar sem er. Við hvetjum félagsfólk sem hefur gagn af stuðningi í íslensku til að nýta þetta tækifæri.
Aðgangur verður virkjaður eins fljótt og auðið er eftir að umsókn berst.
Icelandic for foreigners
Access to Baratala
Sameyki now offers its members free access to Baratala app, a digital Icelandic language app that supports learning through interactive exercises - anytime, anywhere. The app is designed to strengthen Icelandic language skills in everyday work and life. The focus is on vocabulary, comprehension, and spoken language.
Once we have received your information, we will arrange your access as soon as possible, and you will be able to start using it shortly thereafter. If you are unsure which process applies to you, please contact Sameyki for guidance.
Hverjir geta nýtt sér íslenskunám?
Aðgangur getur verið í gegnum vinnustað eða Sameyki, eftir aðstæðum.
Félagar af erlendum uppruna
Félagsfólk Sameykis af erlendum uppruna sem vill styrkja íslenskukunnáttu sína getur fengið styrk til íslenskunáms úr starfsmenntunarsjóði strax og það verður virkt í félaginu.
Það þýðir að ekki þarf að hafa verið í félaginu í 6 mánuði, eins og almennt gildir um aðra styrki. Rétturinn myndast þegar félagsgjald hefur skilað sér til Sameykis, yfirleitt eftir fyrsta mánuð í starfi.
Styrkir og sjóðirStyrkir til vinnustaða
Sameyki veitir einnig styrki til vinnustaða sem vilja bjóða starfsfólki upp á íslenskunám. Slíkir styrkir eru veittir í gegnum sjóði Sameykis sem samið er um í kjarasamningum. Þetta getur nýst þegar:
- þegar vinnustaðir skipuleggja íslenskunám á vinnutíma
- til að styðja inngildingu og jafnan aðgang að fræðslu
- til að efla samskipti og starfsumhverfi á vinnustað