Námskeið fyrir þig
Sameyki býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir félaga þeim að kostnaðarlausu. Nauðsynlegt er að skrá sig, fyrstur kemur fyrstur fær.
Flýtileiðir
Fjölbreytt námskeið í boði
Fræðsluhlaðborðið er öllu jafna kynnt í ágúst fyrir haustönn og í janúar fyrir vorönn. Fræðslan sem er í boði í samstarfi við Fræðslusetrið Starfsmennt er félagsfólki að kostnaðarlausu í flestum tilvikum. Fræðslan sem er í samstarfi við Framvegis miðstöð símenntunar, Farskóla Norðurlands vestra og Símey er félagsfólki að kostnaðarlausu.
Hvenær skráning á námskeið hefst getur verið misjafnt eftir fræðsluaðilum.
Námskeið framundan munu birtast hér á þessari síðu sem er ennþá í vinnslu. Á meðan má skoða námskeiðin hjá Starfsmennt hér.
Námskeið og fyrirlestrar á höfuðborgarsvæðinu
Vefur FramvegisSameyki er í samstarfi við Framvegis miðstöð um símenntun varðandi framkvæmd fræðslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta haustið verða flestir viðburðir í húsi, ýmist hjá Framvegis Borgartúni 20, eða víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. En einnig verður boðið upp á fræðslu í fjarnámi og fá þátttakendur senda krækju á viðburði þegar nær dregur. Þau sem ekki eru vön fjarnámi eru hvött til að hafa samband við Framvegis og fá leiðbeiningar áður en viðburður sem þau skrá sig á hefst.
Þegar þú skráir þig á námskeið þarftu að smella á Skrá umsókn, annars skráist umsókn ekki. Skráning opnar kl. 10 miðvikudaginn 2. september 2026.
Námskeið og fyrirlestrar á Norðurlandi eystra
Vefur SímeyjarSameyki, Kjölur og Eining Iðja í samstarfi við Símey bjóða upp á spennandi viðburði fyrir félagsfólk á haustönn 2026 þeim að kostnaðarlausu, bæði á vefnum og í raunheimum. Dagskrá haustannar er í vinnslu og verður birt í ágúst.
Námskeið og fyrirlestrar á Norðurlandi vestra
Vefur FarskólansSameyki, Kjölur, Aldan, Samstaða og Verslunarmannafélag Skagafjarðar í samstarfi við Farskólann - Miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra, bjóða upp á spennandi viðburði fyrir félagsfólk á haustönn 2026 þeim að kostnaðarlausu, bæði á vefnum og í raunheimum. Dagskrá haustannar er í vinnslu og verður birt í ágúst.
Vefnámskeið og veffyrirlestrar á Vestfjörðum
Vefur Fræðslumiðstöðvar VestfjarðaSameyki í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða býður upp námskeið fyrir félaga. Dagskrá haustannar er í vinnslu.