Námsleyfi
Athugaðu rétt þinn til námsleyfis
Réttur til launaðs námsleyfis byggir á ákvæði í kjarasamningum. Lengd námsleyfis fer eftir starfsaldri og er tekið í samkomulagi við vinnustað. Einnig eru ákvæði um ólaunað námsleyfi sem getur komið til greina þegar nám eða fræðsla nýtist til lengri tíma og er í samráði við vinnustað.
Oft getur það verið hindrun í að skrá sig í nám að hafa ekki tíma og þar getur rétturinn til námsleyfis hjálpað, hann veitir félagsfólki svigrúm til að læra og þróast. Skipulag námsleyfis getur verið breytilegt, allt frá því að taka frí þá daga sem staðarlotur eru og prófalestur, yfir í það að taka samfellt frí í 6 mánuði.
Hér að neðan eru upplýsingar um hver rétturinn er eftir mismunandi kjarasamningum.
Námsleyfi í kjarasamningum
Reykjavíkurborg
Launað námsleyfi
Launað námsleyfi er réttur sem þú ávinnur þér og skilyrði sem þú þarft að uppfylla til að taka út réttinn er að hafa unnið í 4 ár hjá Reykjavíkurborg. Einnig þarf námið að tengjast starfinu eða starfsþróunaráætlun.
- Þú ávinnur þér 2 vikur á ári og getur safnað upp leyfi, en þó mest 6 mánuðir í heild.
- Leyfið er ekki greitt út ef þú hættir í starfi.
- Þú þarft að óska eftir því við stjórnanda á þínum vinnustað að taka út þennan rétt og best er að gera það með góðum fyrirvara.
- Starfsstaður getur takmarkað hversu margir fara í slíkt leyfi á sama tíma (10%) þar sem það getur hefur áhrif á reksturinn.
Þá kemur fram í kjarasamningi að hægt er að semja um lengra eða styttra leyfi og að sumum tilvikum er hægt að fá greiddan ferðakostnað.
Launalaust námsleyfi
Starfsmaður getur sótt um launalaust leyfi til náms sem nýtist í starfi. Um launalaus leyfi gilda reglur Reykjavíkurborgar, samþykktar í borgarráði 17. október 2000.
Sjá nánar í 12. kafla kjarasamnings 2021-2023 (Sérstök útgáfa Sameykis) og í fylgiskjali XIII: Leiðbeiningar um leyfi og sveigjanleika vegna náms og í fylgiskjali XIV: Reglur um launalaus leyfi.
Ríkið
Launað námsleyfi
Eftir 4 mánaða starf hjá sömu stofnun getur þú fengið leyfi til að sækja nám sem samningsaðilar bjóða upp á. Laun eru greidd á meðan.
Launað námsleyfi er réttur sem þú ávinnur þér og skilyrði sem þú þarft að uppfylla til að taka út réttinn er að hafa unnið í 4 ár hjá sömu stofnun. Einnig þarf námið að tengjast starfinu eða starfsþróunaráætlun.
Rétturinn fer eftir því hvaða nám þú velur þér:
- 1 vika á ári fyrir almenna endurmenntun
- 2 vikur á ári ef um er að ræða nám til háskólagráðu (bakkalár eða hærra)
- Hámark uppsafnaðs réttar er 6 mánuðir (greiðist ekki út við starfslok).
- Samráð við stjórnanda er forsenda leyfis og tímasetningar
- Vinnustaðurinn getur takmarkað fjölda sem fer í leyfi (allt að 10%) ef þörf krefur.
Þá kemur fram í kjarasamningi að hægt er að semja um lengra eða styttra leyfi og í sumum tilvikum er hægt að fá greiddan ferða- og dvalarkostnað.
Ólaunað námsleyfi
Starfsmaður á rétt á ólaunuðu leyfi ef honum býðst tækifæri eða styrkur til að vinna að verkefni eða námi, m.a. tengdu starfi. Leyfið er alltaf tekið í samráði við yfirmann.
Á Mannauðstorgi ríkisins má finna upplýsingar um námsleyfi.
Sjá nánar í 10. kafla kjarasamnings:
Ás
Launað námsleyfi
Launað námsleyfi er réttur sem þú ávinnur þér og skilyrði sem þú þarft að uppfylla til að taka út réttinn er að hafa unnið í 4 ár hjá Ás styrktarfélagi. Einnig þarf námið að tengjast starfinu eða starfsþróunaráætlun.
- Þú ávinnur þér 2 vikur á ári og getur safnað upp leyfi, en þó mest 6 mánuðir í heild.
- Leyfið er ekki greitt út ef þú hættir í starfi.
- Þú þarft að óska eftir því við stjórnanda á þínum vinnustað að taka út þennan rétt og best er að gera það með góðum fyrirvara.
- Starfsstaður getur takmarkað hversu margir fara í slíkt leyfi á sama tíma og er miðað við 5% á ári en þó aldrei færri en 1 starfsmann á einingu ef aðsókn verður það mikil að það valdi erfiðleikum í rekstri.
Þá kemur fram í kjarasamningi að hægt er að semja um lengra eða styttra leyfi og að sumum tilvikum er hægt að fá greiddan ferðakostnað.
Ólaunað námsleyfi
Starfsmaður getur sótt um launalaust leyfi til náms sem nýtist í starfi. Um launalaus leyfi gilda reglur Reykjavíkurborgar, samþykktar í borgarráði 17. október 2000.
Sjá nánar í 12. kafla kjarasamnings:
Faxaflóahafnir
Launað námsleyfi
Launað námsleyfi er réttur sem þú ávinnur þér og skilyrði sem þú þarft að uppfylla til að taka út réttinn er að hafa unnið í að minnsta kosti 2 ár hjá Faxaflóahöfnum og námið þarf að nýtast í starfi hjá Faxaflóahöfnum.
Hversu mikið leyfi geturðu fengið?
- Eftir 2 ár: allt að 1 mánuður
- Eftir 3 ár: allt að 2 mánuðir
- Eftir 5 ár: allt að 3 mánuðir
- Eftir 7 ár: allt að 6 mánuðir
- Eftir 10 ár: allt að 9 mánuðir
- Hægt er að dreifa leyfinu yfir lengri tíma, t.d. fjarnám með vinnu.
- Það þurfa að líða minnst 18 mánuðir milli námsleyfa, eða 36 mánuðir ef leyfið var 6 mánuðir eða lengra
Námsleyfi er veitt í samráði við stjórnanda og samþykkist af starfsmannastjóra þannig að það falli að þörfum starfsins og rekstri.
Í sumum tilvikum má setja skilyrði um að þú starfir áfram hjá Faxaflóahöfnum í allt að 12 mánuði eftir námið.
Fræðsla á vegum vinnustaðar
Starfsfólk á að fá tækifæri til fræðslu og símenntunar.
Ef þú ferð á námskeið að beiðni vinnustaðar, þá:
- heldurðu launum
- og færð greiddan kostnað (t.d. ferðakostnað)
Samband íslenskra sveitarfélaga
Starfir þú hjá sveitarfélagi þá er heimilt að veita starfsmanni, sem starfað hefur samfellt í 3 ár, launað leyfi í samtals þrjá mánuði til þess að stunda viðurkennt nám sem veitir ákveðin starfsréttindi.
Sveitarfélög geta sett nánari reglur um veitingu launaðra námsleyfa sem samræmast símenntunaráætlunum þeirra. Laun í námsleyfi miðist við föst laun, vaktaálag og meðaltal starfshlutfalls síðustu 3 ár samkvæmt ráðningarsamningi viðkomandi starfsmanns.
SFV - Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu
Launað námsleyfi
Eftir 4 mánaða starf hjá sömu stofnun getur þú fengið leyfi til að sækja nám sem samningsaðilar bjóða upp á. Laun eru greidd á meðan.
Launað námsleyfi er réttur sem þú ávinnur þér og skilyrði sem þú þarft að uppfylla til að taka út réttinn er að hafa unnið í 4 ár hjá sömu stofnun. Einnig þarf námið að tengjast starfinu eða starfsþróunaráætlun.
Rétturinn fer eftir því hvaða nám þú velur þér:
- 1 vika á ári fyrir almenna endurmenntun
- 2 vikur á ári ef um er að ræða nám til háskólagráðu (bakkalár eða hærra)
- Hámark uppsafnaðs réttar er 6 mánuðir (greiðist ekki út við starfslok).
- Samráð við stjórnanda er forsenda leyfis og tímasetningar
- Vinnustaðurinn getur takmarkað fjölda sem fer í leyfi (allt að 10%) ef þörf krefur.
Þá kemur fram í kjarasamningi að hægt er að semja um lengra eða styttra leyfi og í sumum tilvikum er hægt að fá greiddan ferða- og dvalarkostnað.
Ólaunað námsleyfi
Starfsmaður á rétt á ólaunuðu leyfi ef honum býðst tækifæri eða styrkur til að vinna að verkefni eða námi, m.a. tengdu starfi. Leyfið er alltaf tekið í samráði við yfirmann.
Sjá nánar í 10. kafla kjarasamnings (samningar 2014-2015):