Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Trúnaðarmannafræðsla

Hlutverk trúnaðarmanna er margþætt og er fjölbreytt fræðsla grunnur að því að trúnaðarmaður geti tekist á við hlutverk sitt.
Halda áfram

Uppbygging fræðslu trúnaðarmanna

Framboð fræðslu trúnaðarmanna Sameykis er unnið í samstarfi við a.v. Félagsmálaskóla alþýðu og h.v. Fræðslusetrið Starfsmennt. Markmiðið með fræðslunni er að styrkja trúnaðarmanninn í því að takast á við margþætt hlutverk sitt. Trúnaðarmaður á að hafa vakandi auga með því að staðið sé við kjarasamninga á vinnustaðnum og að ekki sé brotið á réttindum starfsfólks. Hann er tengiliður milli vinnustaðar og stéttarfélags og vinnur að lausnum þeirra ágreiningsmála sem upp koma á vinnustað. 

Í samstarfi við Félagsmálaskólann, sem er rekinn af BSRB og ASÍ, er boðið upp á trúnaðarmannanám sem er byggt á vottaðri námsskrá þar sem 12 námsþættir eru ákvarðaðir útfrá þörfum hópsins. Einnig býður skólinn upp á styttri námskeið um málefni líðandi stundar, réttindi og kjör. Félagsmálaskólinn býður upp á trúnaðarmannanámið ýmist í gegnum staðnám, fjarnám eða vefnám. Líkt og áður eru ákveðnir námsþættir í staðnáminu í samstarfi við BSRB. Nánari upplýsingar um námsþættina í trúnaðarmannanáminu má nálgast hér

Í samstarfi við Fræðslusetrið Starfsmennt býður Sameyki trúnaðarmönnum upp á símenntunarnámskeið sem styrkja þá enn frekar í hlutverki sínu.

Sjá fræðslutækifæri trúnaðarmanna hér.