- september 2016
Fulltrúi SFR Þórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri hefur undanfarna viku ferðast um Vestfirði, Norðurland vestra og Vesturland og haldið fundi víða með félagsfólki SFR. Mikil og góð þátttaka hefur verið á fundunum þar sem bæði stór og smá mál hafa verið til umræðu. Góðar umæður hafa verið á fundunum og þakkar SFR félagsmönnum kærlega fyrir þátttökuna og sitt innlegg. Á næstunni eru síðan fyrirhugaðir fundir á Suðurlandi, Reykjanesi og í Reykjavík.