- janúar 2019
Laganefnd félaganna hefur að undanförnu unnið að því að setja saman ný lög sameinaðs félags, Áhugasömum trúnaðarmönnum og fulltrúum félaganna var boðið að taka þátt í sérstökum rýnihópi og í gær settist því tæplega 40 manna og kvenna hópur yfir drögin frá laganefndinni. Margar góðar ábendingar og athugasemdir komu fram í þeirri vinnu og mun laganefndin vinna þær áfram. Þá hafa stjórnir félaganna einnig fengið kynniningu á drögunum en ný lög munu liggja frammi á skrifstofu félaganna frá og með 16. janúar eða 10 dögum fyrir aðalfund eins og lög gera ráð fyrir.