Image for Article

  1. maí 2026

250 ár frá tilskipun um póstþjónustu á Íslandi

Í dag, 13. maí 2026, eru liðin 250 ár frá því að gefin var út fyrsta tilskipunin um skipulagða póstþjónustu á Íslandi. Með henni hófst formlegt skipulag póstsamgangna sem átti eftir að gegna mikilvægu hlutverki í þróun íslensks samfélags.

Á síðari hluta 18. aldar voru samgöngur innan lands hægar og erfiðar. Samskipti milli landshluta byggðust að mestu á tilfallandi ferðalögum og gat liðið langur tími þar til fréttir og bréf skiluðu sér á milli staða. Tilskipunin frá 1776 markaði því tímamót, þar sem í fyrsta sinn var stefnt að reglubundnum póstferðum um landið undir stjórn hins opinbera.

Tilskipunin var gefin út þann 13. maí 1776 af Kristjáni VII Danakonungi, sem fól stiftamtmanni að koma á þremur reglubundnum póstferðum um landið á ári hverju. Þrátt fyrir þessi áform tók nokkurn tíma að koma þjónustunni á fót, og ekki fyrr en árið 1782 fór fyrsta skipulagða póstferðin fram, frá Reykjanesi við Ísafjarðardjúp til Haga á Barðaströnd. Fyrsti póstur landsins var Ari Guðmundsson, sem flutti 17 bréf í ferðinni, þar á meðal bréf til Skúla Magnússonar landfógeta.

Póstþjónustan varð fljótt ein af mikilvægustu grunnstoðum samfélagsins. Landpóstar ferðuðust yfir fjöll og firnindi í öllum veðrum og færðu birtu og yl inn í torfbæi í formi sendibréfa eða annars lesmáls. Þeir fluttu einnig fréttir, upplýsingar og tengdu fólk og byggðarlög saman. Á tímum áður en vegakerfi, sími og rafræn samskipti komu til sögunnar var pósturinn í raun lífæð landsins.

Saga póstsins er jafnframt saga um þróun Íslands til nútímasamfélags. Regluleg póstþjónusta styrkti stjórnsýslu, auðveldaði verslun og efldi menningarlíf og skapaði sterkari tengsl milli landshluta. Með tímanum varð hún órjúfanlegur hluti af daglegu lífi þjóðarinnar.

Á þessu 250 ára afmæli er litið til upphafsins árið 1776 og þeirrar miklu samfélagsbreytingar sem skipulögð samskipti og samgöngur hafa haft í för með sér fyrir Ísland og íslenska þjóð.

Myndin sem fylgir fréttinni sýnir Hans Karel Hannesson (1867-1928) póstur blása í lúður árið 1909. Hann er staddur nálægt heimili sínu í Reykjavík, þ.e. svokölluðu Hanshúsi, syðst við Barónsstíg, síðar Leifsgata 25. Í fjarska til vinstri er býlið Sunnuhvoll við Háteigsveg.