- maí 2026
Jakobína Þórðardóttir, deildarstjóri félagsdeildar Sameykis, náði þeim stórmerkilega áfanga föstudaginn 1. maí síðastliðinn að ganga sína þrítugustu kröfugöngu í röð. Starfsfólk Sameykis fagnaði Jakobínu af þessu tilefni, enda er hún mikil fyrirmynd og innblástur.
Að sögn Jakobínu þá var gangan á föstudaginn sú eftirminnilegasta hingað til en aðrar göngur sem skildu mikið eftir sig eiga flestar sameiginlegt að hafa verið gengnar í mikilli glímu við veðurguðina.
Til hamingju Jakobína!