Image for Article

  1. nóvember 2026

Framtíð opinberra starfa rædd á norrænum vettvangi

Kári Sigurðsson formaður Sameykis og Gunnsteinn R. Ómarsson framkvæmdastjóri sátu fund NSO í Kaupmannahöfn í byrjun vikunnar. Þar var meðal annars rætt um undirbúning NSO-ráðstefnunnar í Færeyjum 25.–27. ágúst 2027, málefni starfandi fólks hjá hinu opinbera á Norðurlöndum og stöðuna í aðildarlöndunum.

NSO-ráðstefnan 2027

Undirbúningur ráðstefnunnar í Færeyjum er kominn vel af stað. Rætt var um möguleg viðfangsefni ráðstefnunnar, meðal annars gervigreind og áhrif hennar á störf, vinnumarkað og skiptingu verðmæta, græn umskipti og hlutverk ríkisins og fjölþáttaógnir, lýðræði og öryggi samfélaga.

Einnig var rætt um inngildingu fólks af erlendum uppruna, ógnanir, áreitni og ofbeldi gagnvart opinberu starfsfólki og þróun norræna vinnumarkaðslíkansins. Þá kom til umræðu hvernig menntakerfið undirbýr ungt fólk fyrir þær miklu breytingar sem eru að verða á vinnumarkaði.

Fyrirhugað er að Hagstofa Færeyja fjalli um færeyskan vinnumarkað og beri þróunina saman við önnur Norðurlönd. Danmörk, Svíþjóð og Finnland verða auk þess með stutt erindi um stöðuna í sínum löndum á fyrsta degi ráðstefnunnar.

Norrænt samstarf í breytingum

Samþykktir NSO eru frá árinu 2010 og samstaða var um að tímabært væri að endurskoða þær. Meðal þess sem þarf að líta til eru breytingar á aðildarfélögum, fundum og ráðstefnum og tungumálanotkun innan samstarfsins.

Staðan á Norðurlöndum

Í lok fundar var farið yfir stöðuna í hverju landi. Sameiginleg viðfangsefni eru meðal annars skortur á vinnuafli, þrýstingur á opinbera þjónustu, breytingar á starfsumhverfi opinberra starfsmanna og pólitískar breytingar sem hafa áhrif á réttindi og starfsskilyrði þeirra.

Einnig var rætt um mikilvægi þess að fjölga félagsfólki og hvernig norrænu félögin gætu lært hvert af öðru í þeim efnum.