Image for Article

  1. september 2026

Uppsagnir, kjaramál og kosningar í brennidepli á fundi trúnaðarmannaráðs

Vel var mætt á fund trúnaðarmannaráðs Sameykis í gær þar sem uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, kjaramál, komandi kosningar og önnur stór verkefni vetrarins voru í brennidepli. Á fundinum tilkynnti Kári Sigurðsson að hann hygðist gefa áfram kost á sér til embættis formanns Sameykis.

Á fundinum fór Kári yfir helstu verkefni og áskoranir vetrarins, þar á meðal uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, sameiningar ríkisstofnana og stöðu kjarasamninga. Hann sagði næstu vikur verða mikilvægar í ljósi óvissu um þróun verðbólgu og forsenduákvæði kjarasamninga. Kári lagði jafnframt áherslu á að Sameyki yrði áfram sýnilegt í umræðunni og stæði þétt við bakið á félagsfólki sínu og trúnaðarmönnum.

„Það er eitt að taka ákvörðun um niðurskurð og annað að setja hann í umbúðir bættrar þjónustu. Við eigum að geta átt hreinskilna umræðu um áhrif þessara ákvarðana á starfsfólk og þjónustu. Mér finnst líka skjóta skökku við að heyra borgarstjóra tala um að nú eigi að takast á við veikindi starfsfólks á sama tíma og verið er að ráðast í umfangsmiklar breytingar, uppsagnir og niðurskurð sem eykur óvissu og álag. Borgarstjóri hefur meðal annars nefnt starfsfólk í íbúðakjörnum, þar sem álagið er nú þegar gríðarlegt, bæði andlega og líkamlega. Þar ætti borgin frekar að líta sér nær og skoða hvernig hún sjálf heldur utan um starfsfólkið. Við hjá Sameyki þekkjum mörg dæmi þar sem eigur starfsfólks hafa skemmst við störf þess en borgin hefur neitað að bæta tjónið. Það er erfitt að ræða veikindi starfsfólks án þess að ræða um leið starfsaðstæður þess og ábyrgð vinnuveitandans á þeim. Við hjá Sameyki munum áfram standa þétt við bakið á okkar fólki og láta rödd félagsfólks heyrast þegar breytingar af þessu tagi eru boðaðar,“ sagði Kári.

Kári greindi einnig frá því að hann hygðist gefa áfram kost á sér  til embættis formanns Sameykis þegar kosið verður til stjórnar félagsins í mars á næsta ári.

Gunnsteinn R. Ómarsson, framkvæmdastjóri Sameykis, kynnti sex mánaða uppgjör félagsins og sjóða þess. Reksturinn er í góðu jafnvægi og í takt við áætlanir. Þá fór hann yfir stöðu orlofssjóðs, mikla aukningu í notkun flugávísana og uppbyggingu nýrra orlofshúsa sem verða tekin í notkun á næstu vikum.

Komandi kosningar hjá Sameyki voru einnig til umræðu. Ívar Örn Ívarsson, lögfræðingur félagsins, fór yfir nýtt kosningafyrirkomulag, hlutverk uppstillingarnefndar og hvernig félagsfólk getur boðið sig fram til stjórnar félagsins og stjórna sjóða. Trúnaðarmenn voru hvattir til að hvetja félagsfólk til virkrar þátttöku og að íhuga sjálfir framboð.

Aðgengi að upplýsingum og fræðslu var einnig til umræðu, m.a. hvernig ná mætti betur til fjölbreytts hóps félagsfólks með einfaldari miðlun upplýsinga.

Fundurinn endurspeglaði vel þær áskoranir og verkefni sem bíða félagsins í vetur. Við þökkum trúnaðarmönnum fyrir góða mætingu, lifandi umræður og mikilvægt samtal um það sem fram undan er.