- ágúst 2026
Í morgun sagði Reykjavíkurborg upp hátt í 90 starfsmönnum sem störfuðu á velferðar-, skóla- og frístundasviði og er stór hluti þeirra félagsmenn í Sameyki.
„Þetta er svartur dagur í sögu Reykjavíkurborgar. Við hjá Sameyki stöndum þétt við bakið á okkar fólki og munum tryggja að réttindi þess séu virt að fullu.
Með uppsögnunum í dag og undanfarna mánuði hverfa ekki bara stöðugildi, það hverfur ómetanlegur mannauður, áratuga reynsla, þekking og tengsl sem byggð hafa verið upp yfir langan tíma sem erfitt verður að byggja upp aftur. Það sést ekki í fjárhagsáætlunum og Excel-skjölum en borgarbúar munu finna vel fyrir því. Fólkið sem hverfur af vettvangi í dag er fólk sem sinnir mikilvægum störfum í þágu borgarbúa á hverjum einasta degi, fólk sem vann með og fyrir börn og unglinga, studdi við fjölskyldur og var burðarás í velferðarþjónustu borgarinnar.
Fjölmargir félagsmenn okkar sem fengu uppsögn í dag hafa verið í sambandi við okkur og það er okkar forgangsverkefni að tryggja að þeir fái skýrar upplýsingar um réttindi sín og ráðgjöf um næstu skref og þann stuðning sem þeir þurfa á að halda. Jafnframt munum við óska eftir rökstuðningi fyrir hönd þeirra sem þess óska,” segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis.
Boðað til félagsfundar á föstudaginn
Við hjá Sameyki munum boða til almenns félagafundar föstudaginn 28. ágúst kl. 08.30. Fundurinn verður haldinn á Grettisgötu 89 þar sem farið verður yfir stöðuna, næstu skref og réttindi þess fólks sem uppsagnirnar snerta.
Fundarboð verður sent út á morgun og hvetjum við öll til að mæta.
Réttindi og stuðningur
Mikilvægt er að félagsfólk okkar kynni sér réttindi sín og leiti ráðgjafar ef spurningar vakna.
Í uppsagnarfresti heldur starfsfólk áfram réttindum sínum samkvæmt ráðningarsamningi og kjarasamningi. Jafnframt heldur það réttindum sínum hjá Sameyki sem fullgildir félagsmenn út uppsagnarfrestinn.
Meðal þess sem mikilvægt er að hafa í huga:
- Laun, orlofsávinnsla, lífeyrisiðgjöld og önnur starfskjör haldast út uppsagnarfrestinn.
- Réttur til styrkja og þjónustu úr sjóðum félagsins helst, meðal annars vegna náms, starfsþróunar, heilsu, líkamsræktar eða endurhæfingar.
- Félagsmenn geta áfram nýtt sér þjónustu og fríðindi félagsins meðan á uppsagnarfresti stendur.
- Mikilvægt er að varðveita öll gögn sem tengjast uppsögninni, þar á meðal uppsagnarbréf og önnur samskipti.
Við veitum einnig ráðgjöf um uppsagnarfrest, réttindi samkvæmt kjarasamningum, mögulegan rökstuðning fyrir uppsögn og önnur atriði sem tengjast starfslokum.
Samskiptaleiðir og aðstoð
- Bóka ráðgjöf hjá kjaradeild
- Netfang: kjaradeild@sameyki.is
- Sími: 525 8330
Við hvetjum allt það félagsfólk sem málið snertir til að hafa samband við okkur. Við erum hér fyrir ykkur og tilbúin til að veita upplýsingar, ráðgjöf og stuðning.