Image for Article

  1. maí 2026

Trúnaðarmenn ræða kjarasamninga og forsenduákvæði

Trúnaðarmannaráð Sameykis hittist á fundi í vikunni. Á fundinum  kynnti  orlofsdeild orlofskostum félagsins. 
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB kynnti forsenduákvæði kjarasamning og fór yfir stöðuna hjá opinberum starfsmönnum og talaði um  þrjár mögulegar sviðsmyndir varðandi framvindu kjarasamninga í haust. Í fyrsta lagi gæti staðan haldist óbreytt ef verðbólga verður undir 4,7% og þá halda samningar gildi sínu án sérstakra viðbragða. Í öðru lagi gæti komið til viðbragða ef verðbólga fer yfir mörkin, en þá tekur launa- og forsendunefnd ASÍ og SA ákvörðun um aðgerðir með það að markmiði að styðja við stöðugleika í efnahagslífinu. Í þriðja lagi, náist ekki samkomulag um viðbrögð við hærri verðbólgu, gæti komið til uppsagnar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Slíkt myndi jafnframt opna á heimild til uppsagnar samninga á opinbera markaðnum og leiða til nýrra kjarasamningsviðræðna.
Fram kom að undirbúningur fyrir haustið stendur yfir og að samtal sé í gangi milli ASÍ, SA og stjórnvalda. Þá gegnir Þjóðhagsráð lykilhlutverki sem formlegur vettvangur þessara aðila, þar sem metin er staða efnahagsmála og leitað leiða til að styðja við stöðugleika.