- september 2026
Mikil þátttaka var í táknrænum gjörningi fyrir framan Ráðhús Reykjavíkur í morgun þar sem Frítiminn – félag starfsfólks Frítímans, starfsfólk í frístundamiðstöðvum, foreldrar og stuðningsfólk komu saman til að kveðja frístundamiðstöðvar borgarinnar í núverandi mynd. Með blómum, kertum, fánum og öðrum táknum starfseminnar var vakin athygli á þeim breytingum sem taka gildi með nýju skipuriti Reykjavíkurborgar í dag.
Morgunblaðið tók spjall við Valgeir Þór Jakobsson varaformann fagdeildar Frítímans.
„ Við vorum að syrgja fall frístundamiðstöðva, skipulagsbreytingar og áhrif þeirra á fagstarf félagsmiðstöðva og frístundaheimila,“ segir Valgeir Þór Jakobsson, varaformaður fagdeildar Frítímans, sem er undir Sameyki, en hann var viðstaddur athöfnina við Ráðhúsið. Valgeir segir að stjórnendur í félagsmiðstöðvum og frístundaheimilum borgarinnar hafi komið saman til að „syrgja sína gömlu vinnustaði“. Skipulagsbreytingarnar sem tóku gildi í dag hafa meðal annars áhrif á frístundamiðstöðvarnar Kringlumýri, Tjörnina, Brúna og Miðberg. „Við vorum bara að velta upp áhyggjum og í rauninni krefjast þess af sitjandi borgarstjórn að vera boðin að borðinu við áframhaldið af þessum skipulagsbreytingum,“ segir Valgeir.