Sameyki Logo
Deila GREIN
29. maí 2026
26. maí 2026
Sameyki stendur fyrir fjölskyldu og gróðursetningarferð í „Landnemareit“ Sameykis í Heiðmörk laugardaginn 6. Júní milli kl. 12 og 15, þar sem félagsfólki býðst að taka þátt í frekari gróðursetningu í reitnum. Boðið verður upp á veitingar fyrir alla fjölskylduna í fallegu umhverfi.
21. maí 2026
Steinunn Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi Sameykis og bætist í okkar öfluga hóp í sumar. Síðustu tíu ár starfaði hún sem upplýsingafulltrúi hjá Landsneti en gegndi þar áður sama hlutverki hjá Hafnarfjarðarbæ. Steinunn býr því yfir mikilli reynslu af upplýsinga- og samskiptamálum sem mun nýtast okkur vel.
20. maí 2026
Nokkrir miðar eru enn lausir í ferð á Snæfellsnesið undir leiðsögn Harðar Gíslasonar fimmtudaginn 25. júní og þriðjudaginn 30. júní. Lagt verður af stað kl. 9.30 frá Tækniskólanum við Háteigsveg (Gamla Sjómannaskólanum).
15. maí 2026
Trúnaðarmannaráð Sameykis hittist á fundi í vikunni. Á fundinum kynnti orlofsdeild orlofskostum félagsins. Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB kynnti forsenduákvæði kjarasamning og fór yfir stöðuna hjá opinberum starfsmönnum og talaði um þrjár mögulegar sviðsmyndir varðandi framvindu kjarasamninga í haust.
13. maí 2026
Í dag, 13. maí 2026, eru liðin 250 ár frá því að gefin var út fyrsta tilskipunin um skipulagða póstþjónustu á Íslandi. Með henni hófst formlegt skipulag póstsamgangna sem átti eftir að gegna mikilvægu hlutverki í þróun íslensks samfélags.
12. maí 2026
Nú er verið að fara af stað með könnunina Sveitarfélag ársins sem er fyrir félagsfólk Sameykis og annarra félaga innan BSRB sem starfa hjá sveitarfélögum (fyrir utan Reykjavíkurborg). Þetta er fimmta árið sem könnunin er gerð. Könnunin verður send til félagsfólks í dag 12. maí, með netpósti. Gallup sendir út slóðina á könnunina.
04. maí 2026
Jakobína Þórðardóttir, deildarstjóri félagsdeildar Sameykis, náði þeim stórmerkilega áfanga föstudaginn 1. maí síðastliðinn að ganga sína þrítugustu kröfugöngu í röð.
29. apríl 2026
Kári Sigurðsson formaður Sameykis og Sólveig Anna Jónsdóttir fomaður Eflingar skrifa grein á Vísi í dag um ábyrgð Reykjavíkurborgar gagnavart starfsfólki sínu.
28. apríl 2026
Sameyki hvetur allt félagsfólk til að fjölmenna í kröfugöngur og á útifundi í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi launafólks þann 1. maí