- febrúar 2026
Í greininni er gagnrýnt að Viðskiptaráð stilli veikindarétti upp sem kostnaðarvanda fyrir atvinnurekendur án þess að taka mið af samhengi, svo sem eðli vinnunnar og starfa, vinnuumhverfi eða skipulagi á vinnustöðum. ASÍ bendir á að rétturinn sé hluti af því öryggisneti sem tryggi að fólk geti verið heima þegar það veikist án þess að missa lífsviðurværi sitt.
ASÍ undirstrikar að veikindaréttur sé mikilvægur bæði fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. Hann stuðli að lýðheilsu, dragi úr útbreiðslu smita og tryggi stöðugleika á vinnumarkaði. Að mati sambandsins er varhugavert að grafa undan slíkum réttindum á grundvelli þröngrar kostnaðarsýnar.
Sameyki tekur undir mikilvægi þess að verja áunnin réttindi starfsfólks á opinberum vinnumarkaði. Veikindaréttur er hornsteinn kjarasamninga og tryggir öryggi og jafnræði þegar á reynir. Umræða um réttindi launafólks þarf að byggjast á staðreyndum og heildarsýn – ekki einföldun sem grefur undan trausti og samstöðu á vinnumarkaði.
Lesa má grein Magnúsar Norðdahl hjá ASÍ hér.