Image for Article

  1. júní 2026

Bókaðu ráðgjöf hjá kjaradeild Sameykis

Nú geta félagsmenn Sameykis bókað ráðgjöf hjá kjaradeild félagsins í gegnum bókunarsíðu á vef Sameykis.
Á bókunarsíðunni er hægt að velja á milli þess að bóka símtal frá ráðgjafa kjaramála eða bóka ráðgjöf á skrifstofu Sameykis að Grettisgötu.

Markmiðið með bókunarsíðunni er að einfalda aðgengi félagsmanna að ráðgjöf og tryggja markvissari þjónustu. Við bókun fyllir félagsmaður út helstu upplýsingar um erindið, svo sem nafn, kennitölu, vinnustað og upplýsingar sem tengjast málinu. Þannig geta ráðgjafar undirbúið sig betur áður en haft er samband eða komið er í ráðgjöf.

Þegar þjónusta hefur verið valin birtast lausir dagar og tímasetningar sem félagsmaður getur valið úr. Að bókun lokinni fer tíminn beint inn í dagatal kjaradeildar. Athugið að aðeins er hægt að bóka tíma fjórar vikur fram í tímann.

Bókaðu ráðgjöf hér.

Ef erindið er áríðandi er hægt að senda tölvupóst á kjaradeild@sameyki.is eða hafa samband í síma 525 8330 á símatíma kjaradeildar, mánudaga til fimmtudaga kl. 13:00–15:00.