- október 2026
Er Reykjavíkurborg að skúra sig út í horn?
Er Reykjavíkurborg að skúra sig út í horn?
Á síðustu fimm árum hefur Reykjavíkurborg varið tæplega 5 milljörðum króna í aðkeypta ræstingu og sérhæfða hreinsun.
Fyrr í sumar var 11 skólaliðum sagt upp störfum vegna útvistunar á ræstingu. En skólaliðar eru ekki aðeins að sinna ræstingum. Samkvæmt starfslýsingu Reykjavíkurborgar taka þeir þátt í uppeldisstarfi skólanna, aðstoða nemendur, sinna gæslu og bera ábyrgð á öryggi og vellíðan barna.
Það er því full ástæða til að spyrja: Hvað gæti Reykjavíkurborg sjálf gert fyrir þessa fimm milljarða? Hversu marga skólaliða væri hægt að hafa í vinnu fyrir þá fjármuni? Það er auðvelt að horfa á launakostnað sem útgjöld sem þurfi að lækka. En hvað með kostnaðinn við að kaupa þjónustuna af öðrum?
Það er hægt að útvista ræstingunni, en er hægt að útvista öllu hinu sem skólaliðar gera?
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis.