- febrúar 2026
Í pistlinum segir Sonja að samanburður Viðskiptaráðs á veikindadögum byggi á ólíkri talningaraðferð og þar af leiðandi rangfærslum. Sonja segir að á opinberum vinnumarkaði séu veikindadagar taldir í almanaksdögum en á almennum vinnumarkaði í vinnudögum og tekur dæmi um útreikning á veikindadögum í grein sinni. Þess vegna sé Viðskiptaráð á villigötum í talningum sínum á veikindarétti opinberra starfsmanna, og bætir við að nálgun Viðskiptaráðs sé ekki bara ósanngjörn heldur ómanneskjuleg.
„Að leggja til skerðingu veikindaréttar hjá hópum sem eru útsettari fyrir veikindum vegna starfsaðstæðna er ekki aðeins ósanngjarnt heldur ómanneskjulegt,“ segir formaður BSRB við málflutningi Viðskiptaráðs.
Þá segir Sonja Ýr jafnframt að réttur til greiðslna í veikindum á almennum vinnumarkaði taki mið af greiðslum úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga og að heildarmynd veikindaréttar sé því flóknari en einfaldur samanburður Viðskiptaráðs á fjölda daga gefi til kynna. Í pistlinum kemur einnig fram að veikindaréttur sé hluti af kjarasamningum og að breytingar á honum séu kjaramál sem eigi að ræða í því samhengi.
Pistil Sonju Ýrar má lesa í heild á vef Sameykis.