- mars 2026
Á fundunum hafa forsendur sameiningarinnar verið kynntar og farið yfir hvað hún þýðir fyrir félagsfólk. Lögð hefur verið áhersla á að gildandi réttindi og kjarasamningar flytjist óbreytt yfir og að hagsmunagæsla á vinnustöðum haldist traust.
„Póstmannafélag Íslands er eitt af elstu stéttarfélögum landsins, stofnað árið 1919. Á árunum 1980 til 1997, þegar mest lét, voru félagsmenn um 1.400 yfir sumartímann og póstur borinn í nær hvert einasta hús í landinu,“ sagði Jóhanna á fundinum á Akureyri. „Á undanförnum árum hefur félagsmönnum fækkað verulega og í dag eru þeir 377. Það er sá hópur sem stendur undir rekstrinum og við teljum það ábyrga leið að horfa til sameiningar þegar litið er til framtíðarinnar fyrir félagsfólk okkar.“
Félagsfólk í Póstmannafélagi Íslands á fundinum á Akureyri í morgun.
Pósthúsið á Akureyri í morgun.
Á fundunum var einnig farið yfir stöðu orlofseigna PFÍ. „Rekstur orlofshúsa félagsins hefur verið þungur á undanförnum árum vegna fækkunar félagsfólks og við höfum þurft að selja orlofshúsið á Illugastöðum, og það gerðum við með þungum hug, til að standa undir kostnaði og tryggja rekstur félagsins,“ sagði Jóhanna Fríður.
Kári benti á að með inngöngu í Sameyki fengju félagsmenn aðgang að fjölbreyttum orlofseignum, bæði innanlands og erlendis. Orlofshús félagsins hafa gengið í endurnýjun lífdaga, ný orlofshús hafa risið, viðhaldi verið vel sinnt og uppbygging nýrra orlofshúsa í Vaðnesi og við Úlfljótsvatn gengur vel. „Orlofskerfi Sameykis er mjög öflugt og félagið á eignir víða um land. Ég vil líka minna á að punktastaða félagsfólks hjá Póstmannafélaginu færist óbreytt yfir til Sameykis, þannig að enginn missir áunnin réttindi,“ sagði Kári.
Næstu fundir með félagsfólki verða haldnir mánudaginn eftir viku, annars vegar í Keflavík og hins vegar á Selfossi. Þar gefst félagsmönnum áfram kostur á að kynna sér málið og taka þátt í umræðunni.
Endanleg ákvörðun um sameiningu verður tekin á aðalfundum félaganna þar sem félagsfólk greiðir atkvæði um sameininguna.