- mars 2026
Fundargögn fyrir aðalfund Sameykis verða aðgengileg á Mínum síðum Sameykis í lok dags í dag, mánudaginn 16. mars. Þar má meðal annars nálgast ársskýrslu félagsins, ársreikning, tillögur að lagabreytingum og drög að ályktunum aðalfundar.
Gögnin eru birt tíu dögum fyrir aðalfund í samræmi við lög félagsins og gefst félagsfólki þannig kostur á að kynna sér efni fundarins áður en hann fer fram.
Aðalfundur Sameykis verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 16:30 á Grand hótel Reykjavík, í fundarsalnum Háteigi á efstu hæð.
Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf, þar á meðal skýrsla stjórnar og afgreiðsla ársreiknings. Þá verður einnig lögð fram tillaga um að Póstmannafélag Íslands sameinist Sameyki, auk þess sem fjallað verður um tillögur að lagabreytingum og ályktanir aðalfundar.
Félagsfólk er hvatt til að kynna sér fundargögnin og taka þátt í aðalfundinum.
Skráning á aðalfund Sameykis
Tengdar fréttir
Aðalfundur Sameykis haldinn 26. mars
Aðalfundur Sameykis haldinn 26. mars
Aðalfundur Sameykis verður haldinn fimmtudaginn 26. mars á Grand Hótel Reykjavík þar sem fjallað verður um hefðbundin aðalfundarstörf og tillögur sem lagðar verða fyrir fundinn.
Fundur trúnaðarmannaráðs Sameykis
Lagabreytingar og staða kjarasamninga rædd á fundi trúnaðarmannaráðs
Á fundi trúnaðarmannaráðs Sameykis var fjallað um stöðu kjarasamninga og tillögur að lagabreytingum sem lagðar verða fyrir aðalfund félagsins.
Sameiningartillaga Póstmannafélags Íslands og Sameykis
Stjórnir PFI og Sameykis samþykktu að leggja til sameiningu
Stjórnir Póstmannafélags Íslands og Sameykis hafa samþykkt að leggja til við aðalfundi félaganna að félögin sameinist.