Image for Article

  1. mars 2026

Harðorð gagnrýni um niðrandi orð Diljár Mistar um opinbert starfsfólk

Formenn BSRB, KÍ og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga gagnrýna harðlega í sameiginlegum pistli orð Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem lýsti opinberum starfsmönnum sem „Birkenstock-liði“ á Alþingi.


„Á Alþingi í vikunni var opinberum starfsmönnum lýst sem týpum sem eru samgróin Birkenstock inniskónum sínum. Væntanlega hefur viðkomandi séð fyrir sér stelpurnar sem starfa á spítalanum druslast sín 10.000 skref á vaktinni í inniskónum,“ segir í pistli þeirra.



Diljá Mist á Alþingi



Upptaka frá Alþingi


Ummæli um opinbert starfsfólk á Alþingi


Sjá ummæli þingmanns Sjálfstæðisflokksins Diljár Mistar Einarsdóttur á Alþingi á 10:05 mínútu.


Í pistlinum benda þau á að slík orðræða sýni alvarlegan skort á virðingu fyrir því fólki sem heldur uppi grunnþjónustu samfélagsins. Um er að ræða starfsfólk í heilbrigðisþjónustu, menntakerfi, löggæslu og víðar sem sinnir krefjandi störfum við aukið álag, manneklu og sífellt meira ofbeldi í starfi. Formennirnir segja að á sama tíma og þessi staða versni sé brugðist við með því að veikja réttindi starfsfólks, meðal annars með áformum um afnám áminningarskyldu. Slíkt sé skýr forgangsröðun hjá ríkisstjórninni; minna öryggi fyrir fólkið sem ber uppi grunnþjónustuna í samfélaginu.

Í pistli formannanna er undirstrikað að áminningarskyldan sé lágmarksvernd gegn geðþótta og óréttlæti stjórnenda gagnvart starfsfólki auk þess sé áminningarskyldan nauðsynlegur ferill í að bæta vinnustaði og hjálpar stjórnendum að bregðast rétt við. Að afnema hana muni ekki leysa raunveruleg vandamál heldur grafa undan trausti og gera opinber störf síður eftirsóknarverð.


Tengt efni

Góð áminning um Birkenstock-liðið

Pistill

Góð áminning um „Birkenstock-liðið“ sem heldur samfélaginu gangandi

Formenn gagnrýna niðrandi umræðu og minna á mikilvægi opinbers starfsfólks sem heldur uppi grunnþjónustu samfélagsins.



Lesa pistil →

Ríkisstjórnin hyggst svipta launafólk réttindum sínum

Frétt

Ríkisstjórnin hyggst svipta launafólk réttindum sínum

Sameyki hvetur félagsfólk til að kynna sér áformin og áhrif þeirra á ráðningavernd og réttindi.



Lesa grein →

Ný vefsíða útskýrir hvers vegna áminningarskylda skiptir máli

Frétt

Ný vefsíða útskýrir hvers vegna áminningarskylda skiptir máli

Á nýrri vefsíðu er farið yfir mikilvægi áminningarskyldu og áhrif hennar á réttindi starfsfólks.



Lesa grein →