- febrúar 2026
Á fundinum var stjórn fagdeildarinnar falið að leita eftir hugmyndum að nafni á deildina. Nafn skiptir jú máli því það að hefur áhrif á ímynd starfsfólks frítímans, hvernig starfið er metið út á við og hvaða stöðu fagdeildin hefur til framtíðar innan Sameykis. Því var ákveðið að opna fyrir hugmyndasamkeppni um nafngiftina og í kjölfarið hefja skráningu félagsmanna í deildina.
Með þessu vill Sameyki, í samstarfi við stjórn fagdeildarinnar, tryggja breiða þátttöku og að nafnið endurspegli raunveruleika, fjölbreytni og mikilvægi starfsfólks frítímans. Nafngiftin er liður í markvissri uppbyggingu fagdeildar sem á að standa styrkum stoðum til framtíðar.
Í stjórn fagdeildarinnar sitja Svava Gunnarsdóttir, formaður, og með henni Atli Steinn Árnason, Erla Bára Ragnarsdóttir, Hafrún Ósk Santeliz Hafsteinsdóttir, Hjörleifur Steinn Þórisson, Sigrún Ósk Arnardóttir og Valgeir Þór Jakobsson. Varamenn eru Brynja Helgadóttir, Ragnheiður Erna Kjartansdóttir og Yrsa Ósk Finnbogadóttir.
Næstu skref snúast um þátttöku félagsmanna: að leggja fram hugmyndir að nafni, skrá sig í fagdeildina og taka þátt í uppbyggingu hennar innan Sameykis. Því fleiri sem taka þátt, því sterkari verður fagdeild starfsfólks frítímans.