- febrúar 2026
Áhyggjur af starfsöryggi mestar meðal innflytjenda og fólks í tekjulægstu hópunum
Meira en fjórir af hverjum tíu telja að álag í starfi hafi aukist í kjölfar nýrrar tækni eða loftslagsbreytinga
Hlutfall innflytjenda samanborið við innfæddra sem eru mjög eða frekar sammála að álag í starfi hafi aukist í kjölfar nýrrar tækni eða breytinga tengdum loftslagsmálum. 56% innflytjenda telja álag hafa aukist á meðan 39% innfæddra eru á sama máli.
63% telja að tæknibreytingar muni auðvelda þeim starf sitt
Helmingur fær viðeigandi þjálfun eða endurmenntun þegar ný tækni eða breytingar eru innleiddar
Þau sem töldu að breytingar vegna loftslags- eða tæknimála hefðu haft áhrif á starf þeirra eða myndu hafa áhrif á næstu árum voru spurð hvort þau hefðu fengið viðeigandi þjálfun eða endurmenntun þegar ný tækni eða breytingar voru innleiddar á vinnustaðnum. Rúmur helmingur var mjög eða frekar sammála (55%).
Varða – rannsóknastofnun vinnumarkaðarins leggur árlega fyrir könnun meðal launafólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Í könnun Vörðu var spurt hvort starf svarenda hafði breyst eða væri líklegt til að breytast vegna nýrrar tækni eða breytinga tengdum loftslagsmálum. Þau sem töldu svo vera voru spurð um áhrif þeirra breytinga á störf þeirra. Rannsóknin náði til félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og BSRB-bandalags opinberra starfsmanna í almannaþjónustu. Þetta er fimmta árið í röð sem könnun á lífsskilyrðum launafólks er gerð og hefur fjöldi svara aldrei verið meiri en nú þar sem tæplega 25.000 svör bárust.
Í skýrslunni er að finna ítarlega greiningu á niðurstöðum rannsóknarinnar. Skýrsluna má lesa í heild sinni hér (PDF).