- júní 2026
Aðalfundur Frítímans var haldinn þriðjudaginn 26. maí í fundarsal Sameykis. Fundurinn var vel sóttur og félagsfólk til fyrirmyndar. Á fundinum var farið yfir starfsemi og verkefni síðasta árs ásamt því að rædd voru helstu málefni sem snerta vettvanginn um þessar mundir. Þar bar hæst umræða um nýafstaðnar kosningar og möguleg áhrif þeirra, meðal annars hugsanlegan niðurskurð hjá Reykjavíkurborg og hvaða áhrif slíkar breytingar gætu haft á starfsemi frístundastarfs.
Einnig voru kynnt markmið Frítímans fyrir komandi starfsár og farið yfir næstu skref í áframhaldandi hagsmunabaráttu og þróun félagsins. Ákvörðun var tekin á fundinum um breytingu á starfsreglum er varða kosningar til stjórnar. Framvegis verður kosið til stjórnar árlega í stað þess að kjósa alla meðstjórnendur á þriggja ára fresti. Annað árið verða kosnir þrír meðstjórnendur og næsta ár á eftir þrír. Meðstjórnendur sitja því í stjórn til tveggja ára í senn og skarast kjörtímabil þeirra. Nú voru því kosnir þrír meðstjórnendur til tveggja ára og þrír til eins árs. Formaður heldur áfram þriggja ára kjörtímabili sínu samkvæmt gildandi reglum.
Fundurinn fór fram úr væntingum og sýndi enn á ný þann kraft og samstöðu sem einkennir félagsfólk Frítímans.
Hægt er að skrá sig í fagdeild Frítímans með því að fylla út skráningarform.